Menntamál - 01.11.1931, Side 21

Menntamál - 01.11.1931, Side 21
MENNTAMÁL 99 Ef rekja ætti efni þessara erinda nokkuð itarlega, myndi j)aÖ fylla nokkra árganga „Menntamála". En á því er engin hætta, að eg leggi út í það, þegar af þeirri ástæðu, að efni j)eirra flestra er mér ókunnugt ennþá, nerna aðeins að nafn- ýiu til. Eg get einungis sagt frá fáeinum, sumurn, sem eg heyrÖi, og öðrum, sem birt voru í blöðum. Það voru sjálfsagt þau er- indin, sem þóttu skara fram úr. Þó tel eg alls ekki óhugsandi, að önnur, senr rninni gaumur var gefinn, kunni að vera allt eins lærdómsrík. Blöðin liafa fregnrita sina hjá þeirn ræðu- mönnum, sem þekktir eru; en hiriir, sem mirina eru þekktir, fá litla aðsókn og eru 'ekki taldir upp í blöðunum. J. Byskov, kennaraskólastjóri og fyrv. kennslumálaráðherra, flutti erindi um ,,reglu“. Erindið var snjallt, en fátt i ])ví, sem almenningur vissi ekki áður. Um meðferð treggáfaðra barna voru erindi flutt, fleiri en •eitt. Hlustaði eg á eitt þeirra og umræður á eftir. Málshefjandi, forstöðukona skóla í Khöfn, taldi hep])ilegast að hafa slík börn i sérstökum skólum. Aðrir vildu hafa j)au í sérbekkjum, og •enn aðrir álitu heppilegast að aðgreina j)au ekki frá öðrum börnum. Virtust allir hafa nokkuð til síns rnáls. Um trúarbragðakennslu töluðu ýmsir, j)ar á meðal l)orgar- stjóri dr. Ernst Kaper og Kappel Böcker, sem báðir hafa sarnið bækur í kristnum fræðum. Mér j)ótti Böcker tilkomumikill ræðumaður. Lýstu orð hans djúpri sannfæringu og mikilli lífsreynslu, enda er maðurinn tekinn fast að eldast. Gamlar stefnur og nýjar mættust á þinginu, en án j)ess að árekstrar yrðu hættulegir eða meiðingar. Kaper var ákveðinn talsmaður gamla tírnans. Þar á móti varð Vilh. Rasmusscn, forstöðumanni kennaraháskólans í Khöfn, tíðræddast um nýju stefnurnar, og leyndi sér ekki áhugi hans fyrir „nýgræðingn- um“. Sama var um G. J. Arvin, skólaeftirlitsmann á Friðriks- hergi. Hann er einn meðal j)ekktustu nýskólamanna í Danmörku <og talaði um tilraunaskóla og tilraunir í skólum. Finnskur dósent, Karl Bndin að nafni, talaði um uppeldi

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.