Menntamál - 01.11.1931, Side 25
MENNTAMÁL
103
þókmm fyrir starf hennar, og greiÖist sú þóknun úr rikissjóði.
3. gr. — Útgáfustjórn sér um, að jafnan sé nægilegt til af
þeim bókum, sem gefa skal út, og nægur forði á þeim stöðum,
þar sem nota skal bækurnar. Hún semur um ritlaun og útgáfu-
rétt, prentun, bókband og útsendingu, ákveður útsöluverð bók-
anna, sér um innheimtu andvirðis og annað það, sem að útgáf-
unni lýtur. Heimilt er stjórn að ráða mann eða menn til þes?
að vinna að þessu, ef með þarf.
4. gr. — Bækurnar skulu seldar til jafnaðar við kostnaðar-
verði. Skal leitast við að gera útgáfu bókanna ódýra, en þó
vandaða.
5. gr. — Skólastjórar Itarnaskólanna sjá um sölu bókanna
hver í sínum skóla og fá fyrir það 10% af andvirði bókanna.
Sömu sölulaun geta og aðrir fengið, sem vilja hafa hækurnar
til sölu. Útgáfustjórnin setur reglur um tryggingu fyrir greiðslu
andvirðis bókanna og reikningsskil.
Bæjar- eða sveitarfélög, sem kaupa Ijækur til útbýtingar
ókeypis meðal fátækra skólabarna, fá afslátt, sem nemur þókn-
un útsölumanna.
6. gr. —■ Rikissjóður leggur fram til útgáfunnar 10000 kr.
á ári i 5 ár frá því að útgáfan tekur til starfa. Af stofnfé
þessu skulu engir vextir greiddir. Ef útgáfan þarf á meira
rekstursfé að halda, lánar ríkissjóður það gegn 6% ársvöxtum.
7. gr. — Heimilt er stjórn útgáfunnar að tikveða að gefa
út og selja á sama hátt aðrar skólabækur en þær, sem löggiltar
eru. Ennfremur getur hún gefið út eða haft til sölu landabréf,
veggmyndir og aðrar skólanauðsynj ar.
8. gr. — Stjórn útgáfunnar rannsakar, hve miklar birgðir
séu til af þeinr bókum, sem gefa skal út samkvæmt þessum lög-
um, og sér um, að nýjar útgáfur af þeim verði til jafnskjótt
og eldri útgáfur þrjóta.
9. gr. — Lög þessi öðlast gildi þegar i stað.
Þó að þessu máli sé ekki lengra komið, má þó segja, að nokk-
ur skriður sé kominn á það.
Nú hefir málinu þó verið skipað meðal þeirra, er híða ákvarð-