Menntamál - 01.11.1931, Síða 26
io4
MENNTAMÁL
ana og úrlausnar þegar í sta'ð. Skipulagsleysi, og það vandræða
ástand er vér nú búum við, í þessu efni, krefst skjótra og
ákve'ðinna ákvarðana til Iróta frá ])ví sem nú er. MáliÖ ver'ð-
ur hé'ðan af ekki þagað í hel.
Ríkisútgáfa skólabóka verðskuldar athygli kennara og allra
skólamanna. Það er stórt menningarmál fyrir alla hlutaðeig-
endur, jafnframt því sem það er eigi alllítið hagsmunamál fyr-
ir nemendur skólanna og aðstandendur þeirra.
í greinargerð er frumvarpinu fylgir er m. a. 1)ent á, að hóka-
kostur eins barns öll skólaár þess muni nema í minnsta lagi
70 kr. samanlagt, og til þessa mikla verðs beint rakin þau sann-
indi, að fjöldi fátækustu barnanna nær aldrei að eignast þann
liókakost, er reglugerðir skólanna ákveða.
Skólabækur hafa verið og eru enn seldar hlutfallslega jafn
háu verði og aðrar bækur er út eru gefnar, miðað við stærð,
þrátt fyrir ])að, að skólabækur eru einu bækurnar sem hafa
öruggan markað, ])ar sem löggjafinn hefir með lögum um skóla-
hald, fyrirskipað að bækurnar væru keyptar. Það er ])ví hein
siðferðileg skylda löggjaíans að sjá svo til, að þjóðin sjálf verði
ekki féflett á bókum, er henni er skipað með lögum að kaupa,
])ar sem hún leggur sjálf til öruggan og vissan markað. Eins
og segir í greinargerð frumv., er því ætlað að lækka verð hók-
anna um þriðjung eða jafnvel helming, frá því sem nú er, og
er lækkunin fyrst og fremst fólgin í sparnaði á sölukostnaði
hókanna, sl)r. 5. gr. frumvarpsins.
í menningatlöndum þeim, er vér viljum í flestu sníða stakk
vorn eftir, er þessum málum fyrir löngu komið i ])að horf, að
þjóðirnar eða einstök Ijæjar- eða borgarfélög hafa útgáfu og
umsjón skólabóka.
Sumstaðar leggur hið opinbera til allar bækur er skólinn not-
ar, en mjög víða, ])ar sem ekki er svo langt gengið, er þó út-
býtt ókeypis bókakosti til fátækari hluta nemendanna. Gera má
ráð fyrir, að einstök fræðsluhéruð hér á landi fari þessa leið, og
vonandi mörg. Frumvarpið gerir því ráð fyrir, að hreppa- eða
,l)æjarfélög geti fengið, við kostnaðarverði, beint frá ríkisútgáí-