Menntamál - 01.11.1931, Side 27
MENNTAMÁL
105
unni, þann eintakafjölda bókanna, er i hvert skipti er úthlutaÖ
gefins, meSal barna í fræðsluhéraðinu.
Hér skal þess getið, að 11. ársþing ísl. barnakennara, sem
haldið var 17.—21. júní s.l., samþykkti einróma áskorun til Al-
þingis um að samþykkja lög um þetta efni.
Engu skal hér spáð um afdrif þessa máls á Alþingi í vetur.
En þó skal bent á, að margt málið hefir sýnzt sigla undir
lakari byr, þar sem það er borið fram af jafnaðarmönnum á
]}ingi, en stjórnarflokkurinn hefir lýst sig fylgjandi ríkisútgáfu
skólabóka, og getið þess á eigi ómerkari stað en í stefnuskrá
sinni, er birt var í 38. tbl. Tímans ]). á.
Arhgr. Kristjánsson.
Vornámsskeið.
]>að var haldið að Laugarvatni og stóð frá 20. maí til 20.
júní. Kennsla byrjaði kl. 8 að morgni og stóð 5 stundir á
dag, að undanskildum aukatímum.
Þessar námsgreinar voru hafðar unt hönd:
1. Islenzka, farið yfir stafsetningu og lesnar nokkrar vísur
í Egilssögu, 6 st. á viku.
2. Smábarnakennsla, sýndar aðferðir og útskýrðar, 12 st. á
viku.
3. Töfluteiknun, 6 stundir á viku (oít aukatímar).
4. Söngur, 6 stundir á viku.
íslenzku og smábarnakennslu sóttu allir, teiknun allflestir,
en sönginn tæpur helmingur kennaranna. Auk þessa var almenn
þátttaka í sundnámi daglega, og nokkrir kennarar höfðu tíma
í þýzku.
Kennarar voru þessir: