Menntamál - 01.06.1943, Qupperneq 16
6
MENNTAMÁL
náttúrugripasafn sitt. Aðalsteinn jók nokkuð við það og
sá um það með prýði.
Hinn 5. maí 1920 stofnaði Aðalsteinn Ungmennafélag
Eyrarbakka, með um 40 ungmennum. Voru það flest fulln-
aðarprófsbörnin og unglingar, sem höfðu verið í kvöldskóla
þá um veturinn. Fáir voru þar yfir tvítugt. Var það glæsi-
legur hópur, enda átti hann fyrir höndum skemmtilegt
samstarf næstu áriri undir forystu Aðalsteiris. U. M. F. Eyr-
arbakka var og er með allra beztu U. M. F. í Sunnlendinga-
fjórðungi og starf þess fyrir æskulýð Eyrarbakka löngu
viðurkennt. Væri freistandi að skrifa meira um það, en
rúm leyfir það ekki, og vil ég benda á Skinfaxa 1930, þar
sem ritað er um 10 ára afmæli þess félags.
Aðalsteinn gerðist einnig brautryðjandi skátafélagsskap-
arins austan fjalls. Veturinn 1921 stofnaði hann skátafé-
lagið ,,Birkibeina“ og var leiðtogi þess meðan hann dvaldi
eystra. Hafði hann mikla trú á uppeldisgildi'þess félags-
skapar og vann mikið að hugsjónum hans.
Á Eyrarbakkaárum sínum tók AÖalsteinn drjúgan þátt
í starfsemi góðtemplara, þvi að hann var eindreginn bind-
indismaður alla æfi, bragðaði hvorki tóbak né áfengi. Þá
tók hann og nokkurn þátt í stjórnmálum, meðan hann
dvaldi á Eyrarbakka. Var hann öruggur málsvari Fram-
sóknarflokksins og þótti allharður viðskiptis á fundum, því
að hann var málafylgjumaður mikill og gat verið óvæginn
í oröum, ef því var að skipta og ekki undanlátssamur. Fylgdi
hann því jafnan með einurð og festu, sem hann taldi rétt
vera, við hvern sem var að eiga. Þess vegna átti hann og
líka nokkra andstæðinga, sem að líkindum lætur. Samt naut
hann yfirleitt álits og virðingar í skóla- og félagsstarfi
sínu hjá málsmetandi mönnum og æ því meir, sem lengra
leið, svo sem nú er alkunnugt.
Á sumrin var Aðalst. fyrst í kaupavinnu, en 1924 tók hann
að sér skógarvarðarstöðuna í Þrastaskógi og gegndi henni
mörg ár. Þótti honum það ágætt starf og skemmtilegt,