Menntamál - 01.06.1943, Side 22

Menntamál - 01.06.1943, Side 22
12 MENNTAMÁI. leið hans. „Orðin voru ekki mörg, en handtakið því hlýrra“. sagði sr. Eiríkur á Núpi í minningarræðu um Aðalstein. En sr. Eiríkur er einn af fyrstu nemendum Aðalsteins, sem hann hvatti til framhaldsnáms. Annan nemenda si»n, föð- urlausan dreng, tók Aðalsteinn að sér á unga aldri og kost- aði uppeldi hans að nokkru leyti. Það er Þórður J. Pálsson, kennari, sá er í vetur gegndi kennslustörfum Aðalsteins við Austurbæjarskóla, við góðan orðstír. Einn sterkasti þáttur í fari Aðalsteins var tryggðin. Eng- inn gat kosið sér tryggari vin en hann. Skyldmenni han.s og nánustu vinir vissu allra bezt, hvílíkur vinur hann var. Ég hef engan mann þekkt óeigingjarnari og fórnfúsari en Aðalstein. Hugarfar hans var slíkt, að hann hefði glaður reytt sig inn að skyrtunni fyrir vini sína. Og nú er hann dáinn — horfinn frá fjölþættum störfum á bezta aldri. Æskulýður íslands, starfssystkini, ættingj- ar og vinir hafa mikils misst. Skarðið er autt og óbætan- legt. Svo sérstæður var hann og mikilhæfur. Jarðneskar leifar hans voru fluttar norður, til að geymast í þing- eyskri mold. Hann elskaði sveit sína og ættmenn og var tengdur þeim órjúfandi böndum. Honum þóttu það jafn- an dýrðardagar, þegar hann gat dvalið heima í átthögum sínum. Nú er hann kominn heirn og hefur verið kvaddur á virðulegan.hátt, en frá því er skýrt á öðrum stað í þessu hefti. Við starfssystkini Aðalsteins, sem að þessu riti stöndum, höfum mikið að þakka honum. En margorðar þakkir voru honum lítt að skapi. Bezt verður vafalaust að sýna þakklæti með því að vinna ótrauðar en áður að því sem var þungamiðjan í æfistarfi hins látna starfsbróður og hlýtur jafnan að verða í starfi hvers kennara — þetta: að vinna að því, aö hver einasta mannssál ná þeim þroska sem henni er áskapað, samkvœmt réttu lögmáli lífsins. Ingimar Jóhannesson.

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.