Menntamál - 01.06.1943, Síða 24

Menntamál - 01.06.1943, Síða 24
14 MENNTAMÁL Þú lagðir megináherzlu á áhugann og sjálfsnámið. En þú gerðir það ekki til að hlífa sjálfum þér við erfiði. Engan kennara hefi ég vitað leggja fram starfsorku sína af meiri elju og ósérplægni en þig. Oftlega fórst þú með sótthita á fætur til að gegna skyldustarfi þínu og vannst fram á nætur til þess að búa verkefni í hendur nemendum þínum. Þú vissir það til hlítar, að sá, sem vill vekja áhuga, þarf að hafa hann í ríkum mæli sjálfur. Þú vissir, að til þess að útbreiða þekkingu, þarf aleflingu andans og síendur- nýjaða vitneskju um lögmál sjálfrar þekkingarinnar, og til þess að vekja til starfa þarf starfstækni og virðingu fyrir starfi. Hér í þessari stofu hefir þú starfað þau tólf ár, sem þú varst kennari við þessa stofnun. Þú komst hingað þroskaður og þaulæfður kennari, hafðir meðal annars verið skóla- stjóri á Eyrarbakka í tíu ár. Þó fullyrði ég, að þú hélzt áfram að vaxa og þroskast í starfi þínu til síðustu stundar. Og ef þessir veggir gætu talað, þá hefðu þeir frá mörgu að segja, mörgu lærdómsríku fyrir kennara og foreldra í þessu landi, mörgu til fyrirmyndar og eftirbreytni, mörgu til uppörfunar. Og vissulega á starf þitt og fordæmi þitt eftir að tala til kennara og annarra uppalenda þessa lands og æskan mun minnast þín þakklátum huga um langan aldur. Kennarar og aðrir starfsmenn þessa skóla gjalda þér alúöarþakkir fyrir samstarfið. Börnin, sem þú kenndir, þakka þér og landssamtök kennaranna, Samband íslenzkra barnakennara, sem þú varst formaður fyrir, þakka þér af heilum hug og í nafni þeirra, flyt ég þér hinstu kveðju. Enginn naut þar jafnmikils og almenns trausts og þú. Al- úðar þökk fyrir allt þitt fórnfúsa starf. Við munum öll hlýja, trausta handtakið þitt. Vertu sæll, vinur og félagi. Guð veri með þér. Sigurður Thorlacíus.

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.