Menntamál - 01.06.1943, Side 28
18
MENNTAMÁL
pappír, pappa og tré o. s. frv. Til þess að festa litina sem
bezt, er þá ágætt að bera tært olíulakk yfir hann. Varast
skal að bera celluloselakk yfir þessa liti, því að það leysir
þá upp.
— Loks skal þess getið, að hér fást oft góðir, enskir
þekjulitir í kössum með 6—12 litum. Samsetning þeirra
mun vera lík Pelikanlitunum. Liturinn er hálfþurr, í opnum
blikk- eða postulínsskálum; þekur vel og er sterkur og
hressilegur.
Við kennsluna í skólunum kæmi því til greina, að nota
báðar þessar tegundir jöfnum höndum, ensku litina og ís-
lenzku Polychrom-litina.
Meðferð lita.
Þau tæki, sem börnin þurfa að hafa til málunar, eru þessi:
1. litir; 2. teiknipappír; 3. penslar; 4. ilát með vatni;
5. léreftsrýja og 6. pappír (óvandaður) til þess að blanda
litina á.
Þegar teiknipappírinn er valinn, verður að gæta þess, aö
hann sé ekki of þunnur, en sé hann það, hrukkast hann
allur við að blotna og fer í fellingar, og gerir barninu
vinnuna ómögulega.
Það er alls ekki nauðsynlegt, að pappírinn sé hvítur.
Börn hafa einmitt mjög gaman að því að mála á mislitan
pappír, t .d. svartan, brúnan, bláan o. s. frv. Litirnir verða
oft miklu samstæðari og fara betur á lituðum grunni en
á hvítum. Ágætt er að mála á sterkan umbúðapappír eða
þiljupappír.
Penslarnir, sem börn eiga að nota, mega ekki vera of litlir.
Penslar þeir, sem fylgja vatnslitakössum, eru venjulega allt
of litlir og auk þess óvandaðir. Það er börnunum hrein-
asta kvalræði, að mála mynd með of litlum pensli. Það er
álíka fráleitt eins og það, að eiga að sópa gólf með tann-
bursta. Hæfilegar stærðir á skólapenslum eru nr. 9—12
og að jafnaði er bezt að nota sívala, oddmjóa pennsla?