Menntamál - 01.06.1943, Blaðsíða 57

Menntamál - 01.06.1943, Blaðsíða 57
MENNTAMÁL 47 einnig kveðju í Ijóðum, til Að'alsteins, frá fátækri móður í Reykja- vík — en Aðalsteinn hafði hjálpað syni hennar til náms — og las kvæði Rikarðar Jónssonar, sem áður er getið. Síðan las sr. Þorgrímur kveðju í óbundnu máli frá konu í Aðaldal og kvæði frá annarri konu, er helgað var minningu beggja hinna látnu. Sönginn annaðist Karlakór Reykhverfinga, en við hljóðfærið var Páll H. Jónsson, kennari á Laugum. Var hvorttveggja, söngur og hljóð- færasláttur, hið prýðilegasta. Sungið var m. a. frumort kvæði, kveðja fiá ungmennafélögum. Þessi athöfn fór mjög virðulega fram og mæltu það margir, að hennar mundi lengi minnst, þar í sveit, svo sérstæð var hún og áhrifarik. Meðal blómsveiga er bárust til minningar um Aðalstein voru 5 frá Pæreyjum, m. a. frá kennarafélagi þeirra og íþróttasambandi, frá stjórn í. S. í., íþróttanefnd ríkisins, U M. F. Reykjavíkur, U. M. P. Eyrarbakka, mörgum nemendahópum o. fl. o. fl. Samband ísl. barna- kennara, Stéttarfélag barnakennara í Reykjavík og Kennarafélag Laugarnesskóla, gáfu stórgjafir í Menningarsjóö kennara, til minn- ingar um AÖalstein. Stjórn U. M. F. í. stofnaði sjóð til minningar urn hann og er ávarp frá stjórninni birt á öðrum stað í þessu hefti. Margar gjafir hafa þegar borizt í þann sjóð. Ungmennafélag Eyrarbakka gekkst fyrir samkomu á Eyrarbakka til minningar um Aðalstein, á annan í páskum. Var þar fjöldi manns samankominn og margar ræður fluttar. Söng annaðist söngflokkur Eyrarbakkakirkju, er Kristinn Jónasson stjórnar. Þess má geta, að forseti U. M. F. í. og formaður Sambands íslenzkia barnakennara fóru fram á það' við' útvarpsráð, að minningarathöfn Aöalsteins hér í Reykjavík yrði útvarpað, en þeirri beiðni var neitað, Má það undarlegt heita, þar sem um jafnþekktan mann var að ræða og Aðalstein Sigmundsson. — — Uppeldismálaþing'. Stjórn S. í. B. hefur boðaö til uppeldismálaþings síðari hluta júní- mánaðar. Veiður þingið' sett í hátíðasal Háskólans, Þann 19. júní. Gert er ráð fyrir að þingið standi 4 daga. Verð'i eitt aðalerindi flutt á degi hverjum og umræður snúist um það á eftir. En öll erindin fjalla um aöalmál þingsins: Tungan og þjóðerniö. Laugardagskvöldiö 19. júní verður flutt tónlist, leikþáttur og ávörp. í sambandi við þingið verður sýning á vinnu úr Handíöa- og myndlista- skólanum. Þá er gert ráö fyrir kvikmyndasýningum, og ef til vill hljómleikakvöldi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.