Menntamál - 01.06.1943, Síða 23

Menntamál - 01.06.1943, Síða 23
MENNTAMÁL 13 Kveðja flutt ylir líkbiiniui AdalsteÍns Siffiminilssonar í kennslnstofn lians í Aiistufbæjarskíílannni Aðalsteinn Sigmundsson, starfstaróðir og vinur. Fyrir fáum vikum síðan, rétt áður en þú lagðir af stað i hina örlagaríku ferð, sazt þú heima hjá mér, glaður og reifur og við ræddum sameiginleg áhugamál. Meðal ann- ars varð þér tíðrætt um börn á vissum stöðum í nárns- stjórnarumdæmi þínu, sem farið hefðu varhluta lögboðins náms og sjálfsagðra menntunarskilyrða og eins og vænta mátti, varst þú albúinn að leggja fram krafta þína, börn- unum til hjálpar, börnunum í þínu héraði, og börnum annarsstaðar á landinu, þar sem líkt stóð á. Þú ætlaöir að skrifa um málið, ráðgast um það við yfirvöldin og að sjálf- sögðu umfram allt að vinna í kyrþey meðal fólksins, sem þér hafði verið falið að leiðbeina. Störf þín, Aðalsteinn, voru óvenjulega umsvifamikil og margvísleg, en kjarninn í öllu starfi þínu held ég að hafi verið að finna í þrotlausri viðleitni og óslökkvandi áhuga á að styðja og efla börn og unglinga til aukinna mennta og menningar, og sér í lagi þá, sem umkomuminnstir voru. Þú gerðir það í daglegu kennslustarfi þínu, þú gerðir það sem rithöfundur og æskulýðsleiðtogi, þú gerðir það sem vinur og velgerðarmaður. Þú skildir það, Aðalsteinn, af skarpskygni þinni og lif- andi skilningi, sem aldrei brást og alrei gleymdist, að fyrsta skilyrðið til þess, að efla barn eöa ungmenni til mennta, er að vekja varanlegan áhuga þess. Fnginn getur lært neitt að varanlegu gagni, án þess að vilja það sjálfur, og án þess að leggja fram krafta sína sjálfur. Þessum einföldu en óskeikulu sannindum hættir okkur kennurum og foreldr- um stundum við að gleyma eða vanmeta gildi þeirra. Ég efast um, aö þú hafir nokkurt augnablik gleymt þeim.

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.