Menntamál - 01.06.1943, Side 56
46
MENNTAMÁL
mötuneytinu að Gimli og síðar ýmsir nánustu vinir hans, að hlið
„Esju“, sem fór áleiðis til Akureyrar um kvöldið.
í Príkirkjunnni flutti sr. Eirkur J. Eiriksson á Núpi, forseti U. M.F. í.
snjalla ræðu og Davíðsen, færeyskur blaðamaður, flutti kveðju frá
Færeyjum. Sungið var jafnan á undan og eftir ræðunum, bæði í skól-
anum og kirkjunni. Kirkjukór Hallgrímskirkju, er Páll Halldórsson
kennari stjórnar, annaðist sönginn af mestu prýði, Þórarinn Guð-
mundsson lék og á fiðlu í kirkjunni.
Skátar stóðu heiðursvörð í kirkjunni og gengu siðan fylktu liði
fyrir líkfylgdinni undir íslenzkum fánum að skipshlið.1)
Fríkirkjan var þéttskipuð fólki og líkfylgdin mjög fjölmenn. Eink-
um vakti það eftirtekt, hve margt var þar af ungu fólki. Þessi kveðju-
athöfn fór mjög virðulega fram og var sýnilegur vottur um hinar
miklu vinsældir Aðalsteins Sigmundssonar.
Tveir kennarar fóru með líki Aðalsteins norður, þeir Þórður J.
Pálsson og Ingimar Jóhannesson. Með „Esju“ var einnig sent lík
Halldórs Ketils Sigurðssonar, frá Garði í Aöaldal, þess er fórst af bíl-
slysi á annan í páskum. „Esja“ kom til Akureyrar 1. maí. Þá voru
ófærir vegir austur í Aðaldal. Líkin voru send með „Súðinni" til Húsa-
víkur á sunnudaginn 2. maí. Þar blöktu fánar í hálfri stöng og mann-
fjöldi á bryggjunni, er skipið renndi að, þar á meðal fallegur skáta-
hópur, er Sig. Gunnarsson, skólastjóri, stjórnaði. Gengu þeir fyrir lík-
vagninum, undir íslenzkum fánum, að Húsavíkurkirkju. Þar var num-
ið staðar og karlakórinn „Þrymur", er sr. Friðrik A. Friðriksson
stjórnar, söng sálminn: „Lýs milda ljós“. Var þetta látlaus en inni-
leg kveðja. Síðan var haldið að Nesi í Aðaltíal um kvöldið og kist-
urnar bornar þar í kirkju af nánustu skyldmennum og vinum hinna
látnu.
Jarðarförin fór fram að Nesi hinn 5. mai. Var þar fjölmenni saman-
komið, þrátt fyrir hríðarveður og mislingahættu.
U. M. F. „Geisli" í Aðaldal hafði skreytt kirkjuna með grænum
sveigum og lifandi blómum. íslenzkir fánar voru festir á kórgafl, sinn
yfir hvorri kistu. Kisturnar voru fagurlega skreyttar og fjöldi blóm-
sveiga hafði borizt.
Aðalræðuna flutti sr. Þorgrimur Sigurðsson á Grenjaðarstað. Jó-
hannes Friðlaugsson, kennari, hélt minningarræðu um hina látnu,
er báðir höfðu verið nemendur hans og flutti kvæði til Aðalasteins
frá Kennarafélagi Þingeyinga. Ingimar Jóhannesson, kennari, mælti
nokkur kveðjuorð við kistu Aðalsteins og bar fram kveðjur frá Sam-
bandi íslenzkra barnakennara og Ungmennafélagi íslands. Hann flutti
1) Þar var kistan sveipuð islenzkum fána og síðan hafin urn borð.