Menntamál - 01.02.1944, Blaðsíða 6

Menntamál - 01.02.1944, Blaðsíða 6
24 MENNTAMAL tíma en áður, og samanburðurinn við húsnæði barnanna heima fyrir skólunum óhagstæðari en fyrr. Kennslustof- urnar eru yfirleitt snauðar af því, er til prýði má vera. Á stöku stað eru þó málverk og myndir í kennslustof- um, en list í línum og litum á í rauninni eins mikið erindi í barnaskóla og sönglist og ljóðlist. Mér hefur oft dottið í hug, að það stæði nærri kvenfélögunum að vinna að því, að kennslustofurnar séu gerðar vistlegri, eins og þau hafa sums staðar góðu heilli prýtt kirkjur.“ „En hvernig er með skólaáhöldin?“ „Undanfarið hafa erlend kennsluáhöld yfirleitt ekki fengizt hér í búðum, en víða hefur verið bætt um skóla- töflurnar.“ „Hvað viltu nefna fleira til, er sýni áhuga manna á fræðslumálunum, heldur en þennan dugnað við byggingu og endurbætur skólahúsa hið ytra og innra?“ „Meðal annars áhuga fyrir aukinni kennslu í sérgrein- um, svo sem leikfimi, söng, handavinnu og matreiðslu,“ segir Bjarni. „Víða í hinum svonefndu eins manns skól- um, en það er skóli, þar sem ekki starfar nema einn kennari, hafa þessar námsgreinar orðið nokkuð útundan, eins og eðlilegt er.“ „Já,“ segi ég, „það hefur stundum verið lögð áherzla á það í auglýsingum um slíkar stöður, að óskað væri eftir að umsækjendur gætu kennt þessar námsgreinar — auk annars.“ Bjarni játar því, og bætir svo við: „Það er vitaskuld ágætt, að kennari við skóla sem þessa sé svo fjölhæfur, að hann geti kennt þessar sérgreinar, fleiri eða færri, en annmarkar eru þó á að velja mann í stöðuna eftir því fyrst og fremst. Kennara við eins manns skóla ríður mest af öllu á að hafa til að bera stjórnsemi og forstöðu- hæfileika. En sérgreinarnar hygg ég að mætti að ein- hverju leyti kenna á námskeiðum, annað hvort með um- ferðakennslu eða í sambandi við sundnám eða þá helzt

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.