Menntamál - 01.02.1944, Blaðsíða 12

Menntamál - 01.02.1944, Blaðsíða 12
30 MENNTAMÁL hugsað til úrvinnslu, þ. e. leiðréttinga stíla og þess háttar. Um presta og fyrirlesara er það viðurkennt, að þeir þurfi að búa sig undir ræður sínar, en það er engu minni nauðsyn að búa sig undir kennslustund en fyrir- lestur, nema fremur sé. Það er mjög auðfundið á kennsl- unni, hvort tíminn hefur verið rækilega undirbúinn eða ekki. Kennslustarfið byrjar hvorki né endar við upphaf og lok kennslustundar, og reyndar ekki heldur, þegar skólinn er settur að haustinu, því að þá þarf kenn- arinn að hafa skipulagt vetrarstarfið. Námsskrá er hér mjög rúm, og eru skólar okkar um það líkari enskum skólum en skólum Norðurlanda. Þetta er veikleiki og styrkleiki í senn, eins og er í öllu frelsi. Sé undirbúning- urinn vanræktur, verður starfið ómarkvíst allan veturinn. Það tjáir ekki að ætla sér að nota kennslubókina sem námsskrá. Hér eru sömu bækur notaðar í öllum barna- skólum, þótt starfstíminn sé mjög mislangur, og eru þær vitanlega mjög miðaðar við þarfir duglegustu barnanna í lengstu skólunum, og gera því miklu meira en fullnægja lágmarkskröfum fræðslulaganna. Er því hin mesta nauð- syn fyrir kennara, sem vinna við smærri skólana, að þeir geri upp við sig strax að haustinu, hvað þeir ætla að kenna og hverju að sleppa, en láti ekki skeika að sköpuðu um, hvað eftir verður að vorinu eða við fullnaðarpróf. Barnaskólarnir hafa áreiðanlega bæði djúp og víðtæk áhrif, víðtæk vegna þess, hve þeir eru almennir, og djúp vegna þess, hve nemendurnir eru mótanlegir. Verður því vel að vanda til skólanna og kennarastarfsins að öllu leyti, svo að áhrifin verði sem heilladrýgst.“

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.