Menntamál - 01.02.1944, Blaðsíða 20
38
MENNTAMÁL
um mjög falleg og settu skemmtilegan svip á híbýlin. —
Við komum fyrst inn í tvær samliggjandi teiknistofur.
Margir unglingar voru þar að starfi, og létu þeir sér
hvergi bregða við komu okkar, en héldu ótrauðir áfram
við vinnu sína. Töluvert voru vinnubrögðin ólík í stofum
þessum, og gat þar að líta margs konar teikningu og
myndagerð. Sumir nemendanna unnu kostgæfilega eftir
fyrirmyndum og brugðu lítt út af, en aðrir voru óvenju
djarfir í litameðferð og tjáningu. Satt að segja átti ég
bágt með að átta mig á sumum myndunum, en ekki voru
unglingarnir sparir á að skýra hugmyndir sínar og við-
leitni. Dáðist ég oft að áhuga þeirra fyrir starfinu og
hve þeir gáfu ímyndunaraflinu óhikað lausan tauminn og
voru frumlegir og óþvingaðir. Tveir kennarar voru þarna
inni, og sýndust mér þeir vera sinn af hvorum skóla í
tilsögn sinni. Úti í einu horninu var drengur, sem bland-
aði liti í gríð og ergi og bjó til alls konar rósaverk og
útflúr á geysimiklar pappírslengjur. Ekkert skildi ég, hvað
hann ætlaði sér með þessu. Spurði ég hann að því, og
sagðist hann þá vera að leita að smekklegri gerð á vegg-
fóðri. Lét ég mér þá skiljast, að svo mundi vera. Engu
virtist hann taka þetta síður alvarlega en aðrir, sem voru
að mála vandasamar myndir eða teikna eftir erfiðum
fyrirmyndum.
Næst var farið með okkur inn á svolítið heimili, og
fór þar fram hússtjórnarkennsla og eldamennsku. Var
þetta stofa og eldhús, og voru þar margar stúlkur önnum
kafnar og nokkrir drengir, sem ekkert virtust kunna þar
illa við sig. Stofan var sérlega smekklega útbúin, enda
var okkur sagt, að sífellt væri verið að laga þar til og
breyta um húsgögn, veggfóður, alls konar púða og ýmsa
híbýlaprýði. I eldhúsinu var bakað og eldað og steikt af
miklu kappi og skorti hvorki á góða lykt né árvekni við
eldhússtörfin. — Næstu tvær stofur voru einungis helg-
aðar kvenlegum iðnum. Stúlkurnar sátu við saumavélar