Menntamál - 01.02.1944, Síða 10
28
MENNTAMÁL
framkvæmdir, sést enn betur, hve áríðandi er, að þessir
hlutir séu þannig úr garði gerðir, að þeir auki virðingu
barnsins fyrir hinni samstilltu heild þjóðfélagsþegnanna.
Það þyrfti engu síður að vera til ákveðin reglugerð um
húsbúnað skólanna en ýmislegt annáð.“
„Hvað viltu nefna af öðrum málum, sem þið hafið rætt
á kennarafundunum?“
,,Ég gæti til dæmis nefnt, að við höfum margt rætt um
starfshögun í skólunum. Mikil áherzla hefur verið lögð
á að temja börnum vandvirkni og góðar starfsvenjur.
Þá hefur og verið rætt um hinar misjöfnu aðstæður barna
og kennara til náms og kennslu. í farskólum og heima-
vistarskólum er til dæmis heimanámið ákaflega mikil-
vægt. Á því sviði hefur kennurum lítil hjálp verið léð,
illa í hendur þeirra búið fyrir þær aðstæður. Þá vantar
kennslugögn til þess að nota við heimavinnu og sjálfs-
nám. Einnig vantar heppileg hjálpargögn til þess að nota
við kennsluna, þar sem svo hagar til, að kenna verður
samtímis í sömu stofu börnum á ólíkum aldri og þroska-
skeiði. Væri það hið mesta þarfaverk, að gengið væri í
að útbúa slík hjálpargögn.“
„En hvað geturðu sagt mér um vinnubrögð kennaranna
sjálfra og kennslu þeirra?“
„Það er eitt af aðalverkefnum námsstjóranna að kynna
sér, hvernig kennarar inna starf sitt af hendi. Er hér
mikið umræðuefni og fjölþætt, og gæti ég sagt þér meira
um það en allt, sem þú hefur áður hripað niður eftir mér.“
„Rúm Menntamála leyfir það því miður ekki að þessu
sinni,“ segi ég, „og væri þó gaman að tala um þá hluti.
En hver segir þú að tilgangurinn sé með að kynna sér
þetta ?“
„Hann er margs konar. í fyrsta lagi er það flestum
mönnum uppörvun, að tekið sé eftir því, hvernig þeir
vinna starf sitt. Væri vel farið, ef hægt væri að láta
menn njóta verka sinna, — til dæmis við veitingu