Menntamál - 01.03.1944, Side 3
MENNTAMÁL
XVII., 3.
MARZ
1944
JAKOB KRISTINSSON, fræðslumálastjóri:
Helgi Elíasson fertugur
Hinn 18. marz síðastliðinn átti Helgi Elíasson, fulltrúi
og skrifstofustjóri í fræðslumálaskrifstofunni, fertugs-
afmæli. Mundi fáum, sem hann þekkja, koma í hug, að
hann sé orðinn svo gamall,
því að hann hefur allt út-
lit fyrir að vera 10 árum
yngri og flest einkenni
æskumanns, sem fullur er
af starfsorku, fjöri og
áhuga.
Helgi er fæddur í Hörgs-
dal á Síðu í Vestur-Skafta-
fallssýslu, sonur Elíasar
Bjarnasonar, kennara, og
konu hans, Pálínu Elías-
dóttur. Bjuggu þau hjón
þá í Hörgsdal, en á vetr-
um kenndi Elías börnum
og hefur jafnan verið eft-
irsóttur kennari, bæði
meðan hann var eystra og
eftir að hann fluttist með fjölskyldu sinni til Reykja-
víkur.
Haustið 1918, þegar Helgi var 14 ára gamall, var hon-
um komið til náms, vetrarlangt, hjá séra Sigurði Sigurðs-
syni, presti í Hlíð í Skaftártungu. Haustið 1922 fór hann