Menntamál - 01.03.1944, Page 4
50
MENNTAMÁL
í Kennaraskóla Islands og var brautskráður þaðan eftir
þriggja ára nám, 1925. Næsta vetur stundaði hann smá-
barnakennslu og orgelkennslu í Vestmannaeyjum. Þá fór
hann utan, til Danmerkur, og var í Kennaraskólanum í
Gjedved á Jótlandi 1926—27. Fór síðan heim aftur og
gerðist þá stunda- og forfallakennari við Miðbæjarskól-
ann í Reykjavík einn vetur. En sumarið 1928 hvarf hann
til Þýzkalands til framhaldsnáms og dvaldi þar um hálft
annað ár, og mun það hafa verið að ráði Jóns heitins
Ófeigssonar, menntaskólakennara, að hann lagði leið sína
þangað.
Helgi stundaði nám sitt í Þýzkalandi af miklum dugn-
aði undir handleiðslu dr. Niemanns, sem var fræðslu-
málastjóri útlendingadeildar Zentralinstitut fiir Erzieh-
ung und Unterricht og hafði aðsetur sitt í Berlín. Vetur-
inn 1928—29 sótti Helgi fyrirlestra í uppeldisfræði og
sálarfræði við háskólana í Hamborg og Berlín..xEn sumar-
ið á undan og eftir tók hann þátt í kennaranámskeiðum
í Lubeck og Hamborg, Halle og Dresden. Auk þessa tók
hann þátt í félagsstörfum ungra kennara, sat á kennara-
fundum og foreldrafundum, hlýddi á kennslu og kynnti
sér nýtízkukennsluaðferðir og fyrirkomulag barnaskóla
og framhaldsskóla víðsvegar um Þýzkaland. IJefur sá, er
þetta ritar, séð yfirlýsing frá dr. Niemann um námsferil
Helga þar í landi, og fer hann miklum lofs og viðurkenn-
ingar orðum um þennan íslenzka skólamann. Segir dr.
Niemann, að fræðslumálastjóri Berlínarborgar, dr. Heer-
ing, hafi látið svo um mælt, að meðal hinna mörgu út-
lendinga, er hann hafi leiðbeint, hafi hann sjaldan fyrir
hitt mann, sem með jafnmikilli alvöru og festu og Helgi
Elíasson hafi gert sér far um að nema og kynnast sem
bezt skólamálum landsins. Lokaorð dr. Niemanns í nefndri
yfirlýsingu eru á þessa leið: „Hinn hrífandi áhugi Helga
Elíassonar á alveg sérstaka viðurkenningu skilið. Mér
hefur orðið hlýtt til hans sem skólamanns, sem hefur