Menntamál - 01.03.1944, Qupperneq 12
58
MENNTAMÁL
flytja skólabörn, ef byggt væri yfir þá með það fyrir
augum og ferðum þeirra þannig hagað. í einstaka skóla-
hverfi nota nokkur börn sérleyfisbíla í skóla og úr. Verður
þar að haga kennslutíma barnanna eftir áætlun bílanna,
og er það a. m. k. sums staðar óhagkvæmt fyrir skólana.
Það er og borin von, hvort börnin fái daglega bílfar. Er
ekki allténd hægt að bæta mörgum farþegum — þótt
smáir séu — í langferðabíl stuttan spöl. Víðast hvar yrði
því að hafa sérstaka bíla til þess að flytja börnin í skól-
ann og heim aftur.
Skólabíllinn færi um aðalvegi sveitarinnar að morgnin-
um til þess að sækja börnin og flytti þau aftur síðdegis
sömu leið úr skólanum. Börnin yrðu vitanlega að ganga
á aðalveginn og af honum. Hagar því bezt til um bílflutn-
inga í mjóum sveitum og löngum, þar sem ekki þarf
nema einn aðalveg og hvergi er löng né torsótt leið af
honum heim á bæina. Þá hagar og vel til þar sem byggðin
er í hverfum við aðalveginn, enda þótt nokkuð langt sé
á milli hverfanna. Er mikill munur fyrir foreldra að
vita af börnum sínum í bíl með fullorðnum manni en
einum eða í jafnaldra hópi þreyta langa göngu í misjöfnu
veðri, þar sem langt er milli bæja. Er og skemmra að
sækja þau á bílveginn en alla leið í skólann.
Skólabíllinn styttir svo leiðirnar, að taka má víða upp
fasta skóla í stað farskóla, og gætu börnin þó legið við
í heimahúsum. Hann getur sums staðar sameinað tvo eða
fleiri skóla í einn, og á vissum stöðum gætu skólabílar
jafnvel sameinað nokkra hreppa um einn skóla. Skólun-
um væri þá ekki valinn staður með það fyrir augum, að
börnin gætu sótt hann fótgangandi heiman frá sér, heldur
hitt, að ekki væri of löng bílferð í skólann. Vitanlega kæmi
margt fleira til greina um val skólastaða í sambandi við
bílflutninga. Miða yrði skólastaðinn að mestu við vega-
kerfið eins og það er nú eða á að verða í náinni framtíð.
Hagkvæmast er, að sem flest börn gætu sótt skólann