Menntamál - 01.03.1944, Page 15
MENNTAMÁL
61
fleiri heimangönguskóla, mundi og sparast mikill bygg-
ingarkostnaður.
Nú skiptist kostnaður við byggingu skólahúsa á milli
ríkis og hreppa. Sýnist því eðlilegt, að ríkið greiði nokk-
urn hluta af bílverðinu, og nytu svo báðir aðilar hagn-
aðar af lækkuðum byggingarkostnaði. Ríkið greiðir nú
helming af byggingarkostnaði heimavistarskóla, en þriðj-
ung af byggingarkostnaði heimangönguskóla. En á þeim
stöðum, þar sem heimangönguskóli með bíl kæmi í stað
heimavistarskóla, virtist réttlátt, að kostnaði yrði eftir
sem áður skipt til helminga, og væri það þó ríkinu mikill
sparnaður, en þótt ríkið greiddi ekki nema þriðjunginn,
græddi hreppssjóður samt á breytingunni. En yrði skóla-
bíll aftur á móti að vera stærri og dýrari vegna annarra
afnota en skólaferða, eða hann entist þess vegna verr
en ella, er ekki sanngjarnt að aukakostnaðurinn væri
greiddur af skólafé. En á hinn bóginn ekki ósanngjarnt
að ríkið legði eitthvað af mörkum til bættra samgangna
innan sveita, og mundi styrkur til bílkaupa koma mörg-
um að meira gagni en hinn margumræddi ferðalaga-
styrkur til sveitafólks.
Þá er að líta á reksturskostnað bílanna. Séu þeir not-
aðir aðeins til skólaferða, ætti ekki að vera um mikið
slit að ræða eða benzíneyðslu, þar sem leiðin yrði að
jafnaði stutt og hæg samanborið við leiðir og fjallvegi
langferðabíla. Kaup bílstjórans yrði vitanlega stór liður
í reksturskostnaðinum, ef hafa þyrfti mann á fullum
mánaðarlaunum til þess eins að flytja skólabörnin. En
gæti einhver af kennurum skólans tekið að sér bílstjórn-
ina sem aukavinnu eða í hinum lögboðna starfstíma sín-
um við skólann, mundi sá kostnaður verða hverfandi lítill.
Þá er hugsanlegt, að bílstjórinn gæti tekið að sér sér-
greinakennslu við skólann (þ. e. kennslu í handavinnu,
söng og íþróttum). Það mundi sums staðar hagkvæmt
fyrir skólana, en um fjársparnað í því sambandi færi