Menntamál - 01.03.1944, Page 17
MENNTAMÁL
63
-1
Ölfusskólahverfi.
Skýringar: Digra, svarta línan er Ölfusá. Burstirnar tákna fjöll.
Þar, sem vegurinn liggur í smábugðum skammt fyrir vestan Hvera-
gerði, eru ICambar. Svörtu deplarnir eru bæir, en skólinn í Hvera-
gerði er táknaður með liring. Örvarnar sýna leiðirnar, sem skóla-
bíllinn fer: 1) Frá Hveragerði að Laugarbökkum og til baka að
Arnarbæli og þaðan að Hveragerði. 2) Frá Hveragerði að Grímslæk
og aftur að I-tveragerði. Tölurnar á veginum tákna fjarlægð í km.
frá Hveragerði. Leiðin fram og aftur frá Hveragerði er 60 km., og
ekur bíllinn því 120 km. leið á liverjum degi, ef gert er ráð fyrir,
að hann hafi náttstað í Hveragerði, en styttri leið að sjálfsögðu, hafi
hann náttstað t. d. á Laugarbökkum.