Menntamál - 01.03.1944, Síða 26

Menntamál - 01.03.1944, Síða 26
72 MENNTAMÁL það heyrninni, og máli stálpaðra barna og unglinga er hætta búin, ef þau tapa henni. Þegar heyrandi barn byrjar að hjala, er það aðeins að leika sér með talfærin, ,,sprikla“ með þeim eins og t. d. höndum og fótum. Þetta gerir heyrnarlaust barn líka. Heyrandi barn byrjar smátt og smátt að skynja sín eigin hljóð og annarra, og eftir það fer að gæta meiri fjölbreytni í hjali þess og loks að koma fram ákveðin hljóð. Heyrnarlausa barnið hættir smátt og smátt að hjala, þegar það hefur ekki lengur gaman af að „sprikla" með talfærum sínum og gerist þetta oft, þegar barnið er 7— 10 mánaða gamalt. En grátur þess og hlátur heldur áfram að vera eðlilegur, og það lærir brátt að nota rödd- ina til að vekja athygli á sér. Eins og eðlilegt er, vona foreldrar og vandamenn heyrn- arlausra barna í lengstu lög, að ekki sé nú í raun og veru svona illa ástatt fyrir barninu, það sé bara svona seint til máls, og margt getur líka komið í ljós hjá því, sem glepur sýn og styrkir þær tálvonir, að barnið sé ekki heyrnarlaust. Oft koma fram í hjali heyrnarlausra ung- barna hljóð, sem líkjast orðum í ófullkomnu barnamáli, t. d. pa, ma o. fl., og þykir þá foreldrum sem þarna séu merki þess, að barnið sé að byrja að læra- málið. En þetta er því miður engin sönnun þess, og ef vel er aðgætt, segir barnið þessi „orð“ sjaldan. Þau koma fram aðeins af því, að svo vill til, að talfærin hreyfast á þennan sér- staka hátt, og barnið leggur enga merkingu í þau. Þá getur oft verið um það að ræða, að barnið hafi einhverja heyrn, heyri t. d. há hljóð, þótt heyrnin sé ekki nóg til þess, að barnið læri að tala á eðlilegan hátt, og loks er þess að gæta, að heyrnarlaus börn verða oft furðulega vel vör við allan titring, t. d. hurðaskelli og fótatak, án þess að þau heyri þetta. Á þriðja ári fara venjulega að sjást merki þess, ef barnið er heyrnarlaust. Það tekur

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.