Menntamál - 01.02.1945, Page 3
MENNTAMÁL
XVIII., 2.
FEBRÚAR
1945
STEFÁN JÚLÍUSSON:
Heimsóknir í skóla
2. Skólinn í Hessianhæðum.
I.
Landslagi meðfram hinu mikla og söguríka Hudson-
fljóti er svo háttað, að þar skiptast á háar hæðir og
djúpar dældir. Á vesturbakka fljótsins, um 60 km. leið
frá New York-borg, eru Hessianhæðir, Þar er skóli sá,
sem ég ætla að segja hér stuttlega frá.
Ég fór fyrst í heimsókn í Hessianhæðaskólann föstu-
daginn 28. nóvember 1941. Og sökum þess, hve mér þótti
skólinn einstakur og sérstæður í sinni röð, og hve margt
var þar merkilegt að sjá, heimsótti ég hann aftur á út-
mánuðum sama veturinn. Einnig hafði ég þá séð kvik-
mynd um starfsemi skólans í háskólanum, þar sem ég
stundaði nám.
Ilessianhæðaskólinn er alger tilraunaskóli. Hann er
stofnaður og rekinn af kennurum og foreldrum í smá-
byggð þarna í hæðunum, og er hvort tveggja í senn heim-
angöngu- og heimavistarskóli. Veturinn 1941—42, þegar
ég hafði kynni af skólanum, voru í honum um 75 nem-
endur, og voru þeir á aldrinum 2—18 ára. Skólinn nær
því yfir alla aldu '-fiokka 1 arna og unglingaskólans, allt
frá fósturskólum og upp í eldri gagnfræðaskólann. Þar
var því á auðveldan og einfaldan hátt hægt að fá yfirlit
yfir alla kennslu, sem veitt er vestra á undan háskóla-
námi. — Á undanförnum árum hafa 90 eða 95% af