Menntamál - 01.02.1945, Blaðsíða 13
MENNTAMÁL
39
LaunamáliS á alþingi
Ekki er ástæða til að segja margt frá því að þessu
sinni. Eins og menn vita var svo um samið milli þeirra
stjórnmálaflokka, er að núverandi ríkisstjórn standa, að
launalög skyldu samþykkt nú í vetur, og var helzt gert
ráð fyrir, að sú samþykkt næði fram að ganga fyrir jól.
Úr því varð þó ekki, og afgreiddi efri deild frumvarpið
frá sér 29. jan., en nú, þegar þetta er ritað (19. febr.),
er nefndarálit um það komið fram í neðri deild. Ýmsar
breytingar gerði efri deild á frumvarpinu, og miða þær
flestar að því að hækka laun einstakra manna, þangað
til kemur að kennurunum; þá koma breytingar til lækk-
unar. Að vísu lítur svo út í frumvarpinu, að heimavistar-
skólastjórar eigi að hækka um flokk, færast úr 8400 kr.
árslaunum í 9000 kr. árslaun. En þessi „hækkun“ er í
raun og veru lækkun, því að jafnframt er kippt burtu
því ákvæði, er upphaflega var í frumvarpinu og kvað
svo á, að heimavistarskólastjórum skyldi reiknast full
laun fyrir 7 mánaða kennslustarf, en nú skulu laun þeirra
miðuð við 9 mánaða kennslu minnst, og lækka síðan um
1/9 af heildarlaununum fyrir hvern mánuð, svo að skóla-
stjórar heimavistarskóla, sem starfar í 7 mánuði, lækka
samkvæmt breytingum efri deildar úr 8400 kr. árslaun-
um í 7000 kr. Enn fremur hefur eftirfarandi klásúlu
verið bætt inn í frumvarpið: „Farkennarar, sem ekki
hafa kennararéttindi, fá ^4 af launum annarra barna-
kennara, miðað við jafnlangan starfstíma."
Um þetta farast Sigurvin Einarssyni framkvæmdastjóra
þannig orð í snjallri og glöggri grein í Tímanum 13. febr.
síðastliðinn:
„Um skólastjóra heimavistarskóla er það að segja, að