Menntamál - 01.02.1945, Blaðsíða 26

Menntamál - 01.02.1945, Blaðsíða 26
52 MENNTAMÁL ast nágrannahreppunum um heimavistarskóla eða lieimangönguskóla, sem hefði bíl til umráða. Hjálparbeiðni. Það er vilji allra þeirra, er Menntamál lesa, að þau séu sem ijöl- breyttust að efni og skemmtilegust. Ritstjórnin er sama sinnis. Til þess nú að þetta megi verða í ríkara mæli en að undanförnu, lieitir hún á lesendurna, kennara, skólanefndarmenn og aðra, sem um menningarmál hugsa, að hjálpa til í þessu efni. Og til hvers er þá ætlazt af þeim? Ekki til annars en þess, að þeir hripi niður á rniða eittlivað af þeim iiugrenningum, sem vakna hjá þeim við lestur tíma- ritsins, og sendi ritstjóranum. Til nánari skýringar skulu hér nefnd nokkur atriði, sem tilefni geta gefið tif slíkrar „niðurhripanar": 1) Lesanda finnst grein þörf eða skemmtileg, og gæti vitneskja um það orðið til þess, að fleiri svipaðar greinar birtust. 2) Lesanda finnst grein óþörf eða leiðinleg eða óviðeigandi, og gæti verið engu síður gott að vita um það vegna seinni tímans, þótt það sé vitaskuld ekki eins kitlandi fyrir sjálfsánægju ritstjórans og efni 1. liðs. 3) Lesandi sér, að eitthvað er missagt, og er þá skylt að leiðrétta það, þótt smátt kunni að vera. 4) Lesandi veit meira um eitthvert atriði, og gæti þá verið mikils virði að fá vitneskju um það, t. d. þætti ritstjóranum vænt um, ef einhver gæti sagt lronum nokkuð af Sigfúsi Sigurðssyni mállausa (sjá 8. bls.). 5) Lesanda finnst einhver fullyrðing eða skoðun í ritinu vera hæpin, og er þji æskilegt, að hann segi sitt álit, því að það getur vakið umhugsun og hjálpað til að finna rétta niðurstöðu. 6) Lesanda dettur eitthvað það í hug við lestur ritsins, sem hann mundi hafa liaft orð á við ritstjórann, ef hann liefði setið á móti hon- um í stofunni, og er þá vitanlega eins mikil ástæða til að skrifa lionum það. Óþarft er að skrifa langar greinar og sjaldnast æskilegt, — stuttar athugasemdir, fáeinar setningar, nokkur orð nægja. Nú verður fróðlegt og lærdómsríkt að sjá, hve margar athugasemdir ritstjóranum berast við þetta hefti og hvernig hann hagnýtir sér þær. Utanáskrift hans er Tjarnarbraut 11, Hafnarfirði. ÚTGEFANDI: SAMBAND ÍSLENZKRA BARNAKENNARA. Utgáfustjórn: Ingimar Jóhannesson, Arngrímur Kristjánsson, Ólafur Þ. Kristjánsson, ritstjóri. Prentsmiðjan ODDI h.f.

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.