Menntamál - 01.02.1945, Blaðsíða 25
MENNTAMÁL
51
Fréttir og félagsmál
Petrína Halldórsdóttir,
handavinnukennari á Laugarvatni, andaðist í Reykjavík 23. janúar
s.l. eftir uppskurð við skjaldkirtilsmeini. Petrína var fædd i Reykja-
vík 19. nóvember 1900, og voru foreldrar hennar Halldór M. Olafs-
son trésmiður og kona hans, Sigrún Jónsdóttir. Handlagni, smekk-
vísi og vandvirkni komu snemma í ljós hjá Petrínu, og 1922 lauk
hún prófi við Kunstflidskolen í Kaupmannahöfn með ágætum vitnis-
burði. Árið 1938 tók hún kennarapróf í handavinnu við Kennara-
skóla íslands, og hlaut þá einkunnina 10 í sérgrein sinni, enda var
liandbragð hennar með ágætum, á hverju sem hún snerti, og kunn-
áttan staðgóð. Hún kenndi stúlkum handavinnu við Barnaskóla
Hafnarfjarðar 1924—1931, að liún hætti Jiví starfi vegna vanheilsu.
Haustið 1940 var hún ráðin handavinnukennari stúlkna að Laugar-
vatnsskólanum, en hafði kennt Jiar einn vetur áður í forföllum. Starf-
aði hún síðan við Jiann skóla, meðan kraftar entust, og svo var áliugi
liennar og kjarkur mikill, að hún vann að kennslunni fram til jóla,
þótt sjúkdómur hennar væri þá orðinn banvænn.
Skólabílar.
I marzhefli Menntamála s. 1. ár var grein um skólabíla eftir Bjarna
M. Jónsson, og lét límaritið sérprenta greinina til Jiess að vekja meiri
athygli á Jiessari merkilegu nýjung í skólamálum okkar. Hafa Mennta-
mál síðan fylgzt með Jrví, sem gerzt hefur í þessum efnum, og munu
gera eftirleiðis. Eins og skýrt var frá í grein námsstjórans, höfðu tvö
skólahverfi á eftirlitssvæði hans, Vatnsleysuströnd og Ölfus, keypt bíla
Jrá um liaustið til að flytja skólabörn í skólann og heim aftur. Bæði
Jiessi skólaliverfi halda Jiessari starfsemi áfram í vetur, og talar það
sínu máli um, hvernig hún reyndist í fyrra. Nú í haust fékk Laugar-
nesskólahverfi í Reykjavík skólabil lil þess að annast flutninga barna,
sem lengst eiga í skólann, og Njarðvíkurskólahverfi hefur leigt sér bíl
í vetur. Er þá tala starfandi skólabíla tvöfalt hærri í vetur en í fyrra.
Skyldu þeir verða orðnir átta, skólabílarnir, um þetta leyti næsta
vetur?
Tvö skólahverfi á Suðurlandi hafa óskað eftir skólabílum næsta
haust, og aðrar skólanefndir gera ráð fyrir skólabílum í sam-
bandi við sameiginlegan skóla tveggja eða fleiri hreppa. Er nú víða
mikill áhugi í sveitum fyrir að leggja niður farkennsluna og samein-