Menntamál - 01.02.1945, Blaðsíða 11
MENNTAMÁL
37
ast þar lífi og störfum. Mér flaug oft í hug, aÖ ef til vill
gætum við dregið af þessari tilraun lærdóma, er við sett-
um hér á stofn heimili fyrir börn og unglinga, sem á
einhvern hátt eiga ekki samleið með fjöldanum. Þó að
þetta skólaheimili væri fyrir fullkomlega heilbrigð og eðli-
leg börn, var margt í rekstri þess og störfum, sem ein-
mitt væri nauðsynlegt sem grundvöllur undir slíka stofn-
un. —
Stefán Júlíusson.
Fyrstu árin
Svo nefnist bók, sem nýlega er komin út (Bókaútgáfan
Heimir, Reykjavík, 1944). Hún er „handbók um barna-
uppeldi og sálræna meðferð ungbarna", eins og stendur
á titilblaði. Höfundur hennar er amerískur sálfræðingur,
J. B. Watson, en dr. Símon Jóh. Ágústsson hefur þýtt
hana. Efni hennar verður vart lýst skýrar og sanngjarn-
legar en dr. Símon gerir í formála fyrir henni. Þar segir
hann svo:
„John Broadus Watson er einn kunnasti sálfræðingur
Bandaríkjanna. Hann fæddist árið 1878 og varð þrítugur
að aldri prófessor í tilraunasálarfræði við John Hopkins
háskóla í Baltimore. Hann er helzti forvígismaður stefnu
þeirrar í sálarfræði, er nefna mætti hátternisstefnu (be-
haviorism), en hún er í því fólgin að ráða sálarlíf manna
eingöngu af athöfnum þeirra eða hátterni í víðustu merk-
ingu. Þegar málið er talið til hátternis, er rannsóknar-
aðferð þessari ekki jafn þröngur stakkur skorinn og ætla