Menntamál - 01.02.1945, Blaðsíða 12

Menntamál - 01.02.1945, Blaðsíða 12
38 MENNTAMÁL mætti í fyrstu, enda varpar Watson sjálfsskoðuninni fyrir borð og telur hana blekkjandi og óvísindalega. Eins og vænta má, er sálarlíf dýra og ungbarna tilvalið rannsóknarefni hátternisfræðinga, því að þau geta ekki lýst fyrir öðrum sálrænni reynslu sinni. Vér verðum að ráða í sálarlíf þeirra af svipbrigðum þeirra, hljóðum og hátterni. Doktorsritgerð Watsons fjallaði um tamning dýra, og margt hefur hann ritað um barnasálarfræði og uppeldisfræði, m. a. þessa bók. Kenning Watsons er óneitanlega einhliða og þröng, þótt rannsóknir hans séu í ýmsu athyglisverðar. Þegar ég, að beiðni útgefanda, tók að mér að þýða þessa bók, var það ekki af þvi, að ég sé öllum fullyrðingum og skoðunum höfundar sammála. En að hinu leytinu varpar bókin nýju ljósi á sálarlíf barna og veitir mörg ágæt ráð um uppeldi þeirra. Kaflarnir um hræðslu barna og reiði eru t. d. stór- merkilegir og hafa orðið almenningi til mikils gagns og skilningsauka. Watson ritar ljóst og alþýðlega. Hann er hvorki myrkur í máli né hræddur við að halda skoðunum sínum fram. Hefur hann því í einu aflað sér margra að- dáenda og orðið mörgum hneykslunarhella. Má gera ráð fyrir því, að bókin veki athygli hér sem annars staðar og verði mikið lesin.“ Menntamál vilja benda foreldrum á þessa bók og ein- dregið ráða þeim til þess að lesa hana, því að margt má af henni læra. Hún er ætluð leikmönnum og efnið þannig orðað og fram sett, að almenningur geti haft þess full not.

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.