Menntamál - 01.03.1947, Page 8

Menntamál - 01.03.1947, Page 8
2 MENNTAMÁL hlotið háa einkunn til þess að geta orðið læknar, tann- læknar og lyfjafræðingar. Ég býst ekki við, að við þurf- um að eyða orðum að heimskunni í þessu. Ég vil aðeins benda á, að einkunnirnar við stúdentsprófið eru næsta ófullnægjandi mælikvarði á hæfileika manna, minninu er þar gert allt of hátt undir höfði, og kapphlaupið um einkunnirnar er til hinnar mestu óhollustu í starfi skól- anna. Við þetta bætist, að val nemenda til einstakra menntastofnana fer fram án tillits til heildarinnar. Það sætir óvéfengjanlega nokkurri furðu, að meiri kröfur skuli gerðar um vitsmuni og menntun til þeirra manna, sem ætla að gerast lyfjafræðingar, en til dómara og menntaskólakennara. Annars dregur óðum að því, að hugsa verði til tak- markana um inngöngu í aðrar deildir háskólans. Af því leiðir, að taka verður þessar inntökuhömlur til endur- skoðunar í heild. Við skulum vona það, að þeir, sem um þetta mikla nauðsynjamál eiga að fjalla, hafi til þess nægilega víðsýni í félagslegum efnum og sálfræðilega kunnáttu til að bera. Inngönguhölmurnar í háskólann og æðri skólana eru ekki vandamál, sem er óháð öllu öðru. Það er hvergi nærri nægjanlegt að velja sæmilega úr þeim hóp, sem náð hefur stúdentsprófi, eins og högum er nú háttað í skólamálum landsins. Það er engin trygging fyrir því, áð það séu þeir, sem hafa mest til brunns að bera til þeirra starfa, sem hin æðsta menntun veitir rétt til. Á annan bóginn veljast menn til menntaskólanáms mjög eftir búsetu í landinu, en á hinn bóginn eftir fjárráðum og félagsstöðu foreldra sinna. Gáfurnar ráða ekki mestu um það, hverjir skipa sæti í menntaskólum landsins, heldur aðstaða for- eldra þeirra í þjóðfélaginu. Ég vil benda á rannsóknir A. Skaugs frá 1934. Þær leiddu í ljós, að börn verka- manna og bænda eru þar t. d. hlutfallslega í miklum minni hluta.

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.