Menntamál - 01.03.1947, Blaðsíða 20

Menntamál - 01.03.1947, Blaðsíða 20
14 MENNTAMÁL unum. Ekki veit ég til þess, að siðurinn að kveðast á tíðkist í Ameríku, hins vegar stafa menn hér hver í kapp við annan, en sennilega er sá siður svo vel lifandi af því, að það er ekki svo ýkjalangt síðan almenningur amerískur varð stautfær. íslendingar ættu ekki að þurfa að eyða tíma í slíkt. Ég get ekki hugsað mér betri skemmtun fyrir unglinga en kvæðakapp, og mætti til að auka það láta nemendur í einum bekk iðka það og láta síðan þá beztu úr bekkn- um keppa við aðra bekki í skólanum og flokk úr einum skóla keppa við flokk úr öðrum skóla. Yrði slík kvæða- keppni meðal skólanna að sínu leyti eins og fótboltakeppni í amerískum og enskum skólum og öllu þjóðlegri. Auðvitað yrðu börnin að læra mikið af vísum, áður en þau færu að reka saman bögur sjálf. Sjálfsagt væri að byrja með hinum ódýrri háttum ferskeytlunnar, en ekkert væri á móti því, þótt þau fengju líka að kynnast þeim dýrari. Að setja saman slíkar stökur er ekki ólíkt því að fylla út í krossgátu, — en miklu munar það, að versa- gjörðin er æðri íþrótt. Það er síður en svo, að ég ætli mér þá dul að semja fastar tillögur um kennslu í skáldskap í íslenzkum skól- um. Það eitt, sem ég vildi benda íslenzkum kennurum á, er að hér er hin allra þjóðlegasta íþrótt, sem á íslandi hefur þroskazt og lifað hefur á heimilum og í sveitum fram á daga þeirra manna, er hú lifa, og verið geysi- drjúgur þáttur í menningu vorri. Þennan þátt hafa íslenzkir skólar bæði hærri og lægri algerlega vanrækt þrátt fyrir þau drjúgu uppeldislegu áhrif, sem hann sannanlega (hugsið til hinna hagorðu Þingeyinga !) hefur haft að geyma. Þessi merkilega vanhyggja kemur auðvitað af því, að í skólakerfi Norðurlanda, sem okkar kerfi var sniðið eftir, var ekki ætlaður neinn tími til slíkra iðkana. Það er merki- legt tákn um afl eftirlíkingarinnar, sem hefur ráðið svo

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.