Menntamál - 01.03.1947, Qupperneq 10

Menntamál - 01.03.1947, Qupperneq 10
4 MENNTAMÁL Gerum ráð fyrir, að sex verkefni séu ætluð hverju ald- ursári. Nú leysir sjö ára drengur öll sjö ára verkefnin, en auk þess tvö átta ára verkefni og eitt níu ára. Hvert verkefni, sem hann lýkur ofar sínu aldursári reiknast honum til tveggja mánaða í greindaraldri. Greindaraldur hans verður því 7 ár + 6 mán. = 7i/2 ár. Greindarvísi- talan (GY) er fundin á þann hátt, að aldri barnsins er deilt í greindaraldur þess. f þessu tilfelli: 7,5 : 7 = 1,07. Venjan er að margfalda útkomuna með 100 til þess að fá heila tölu. GV = 100 er meðallag. Þegar fundin er greindarvísitala fullorðinna, er að jafnaði reiknað með 16 ára aldri. (Það er þó sennilega of há tala. Aths. þýð.) Það, sem gefur greindarvísitölunni sérstakt gildi, er það, að við margendurteknar prófanir hefur hún reynzt nærri því stöðug. Ef við prófum umræddan dreng aftur, þegar hann er fjórtán ára, munum við komast að því, að greindaraldur hans er því sem næst 15 ár. GV verður því 15 : 14 = 107. Að vísu er líklegt, að það verði ekki alveg nákvæmlega svo, en mjög nærri því. Ef barn er greindar- prófað, má því segja fyrir fram með miklum líkum, hvaða vitsmunastigi það muni ná, er það kemur til fullorðins- ára. Af þessu getur auðvitað hlotizt geysilegt gagn, en í því er einnig fólgið afar mikið, fræðilegt gildi. Ef greind- arvísitalan er stöðug, bendir það til, að greind mannsins sé óháð æfingu og námi eða með öðrum orðum, að hún sé að mestu leyti bundin erfðum, að hún sé í eðlið borin. Nánari rannsóknir hafa þó leitt í Ijós, að reglan um stöðug- leika greindarvísitölunnar er ekki skilyrðislaus. Ef upp- eldisaðstæður barns breytast gagngert, breytist greindar- vísitalan einnig. Oft hækkar hún, en ekki mjög mikið, ef til vill um 5—10 einingar. Af þessum rannsóknum virðist mega ráða, að mismunur á erfðaeigindum ráði miklu meira um greindina en mismunur á uppeldisaðstæðum, að minnsta kosti eins og sá mismunur kemur fram innan menningarþjóðfélaga í Evrópu og Ameríku. Rannsóknir

x

Menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.