Menntamál - 01.03.1947, Síða 17

Menntamál - 01.03.1947, Síða 17
MENNTAMÁL I 11 Markmið skipulagningar þjóðfélagsins til almanna heilla er ekki það eitt að tryggja mönnum, að þeir hafi í sig og á, heldur verður hún einnig að láta hin mannlegu verð- mæti til sín taka, sinna öllum höfuðþörfum manna. Því marki verður ekki náð með því eina móti að tryggja efna- haginn, heldur einnig m. a. með því, að hver einstakling- ur hljóti þá menntun og það starf, sem bezt hæfir hæfi- leikum hans og áhugaefnum. I þessu sambandi er mikils- vert að gefa því gaum, að starfsgreinum samsvarar hæfi- legt gáfnastig. Þeir, sem eru greindari en starfsgrein þeirra gerir kröfu til, missa áhugann á starfi sínu. Þeir, sem hafa ekki nægar gáfur til þess' að vinna verk sitt, verða að þola þrautir af þeim sökum. Rétturinn til vinnu er ein af hinum miklu kröfum sam- tíðarinnar. En það er ekki nóg, að hver maður fái vinnu, heldur hina réttu vinnu, að hann verði réttur maður á réttum stað. Við erum ennþá víðs fjarri þessu marki og náum því sennilega aldrei til fulls. En það er að minnsta kosti hægt að nálgast það til mikilla muna, og bíður skólanna mikið hlutverk í þeim efnum. Skynsamleg takmörkun á aðgöngu að háskólanámi er áfangi á þeirri leið.

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.