Menntamál - 01.03.1947, Page 19

Menntamál - 01.03.1947, Page 19
MENNTAMÁL 13 uppi list ferskeytlunnar í landinu. Ef menn eyða tíma til teikningar og söngs, því þá ekki að eyða tíma til hinnar fornu listar, sem fremur öllum öðrum hefur haldið uppi samhenginu í íslenzkum bókmenntum, list rímnanna, list ferskeytlunnar! Nú veit ég það af eigin reynslu, að það er ekki alveg rétt að fullyrða, að allir fslendingar geti komið saman bögu, en það tel ég víst, að ekki yrðu undantekningarnar að sínu leyti fleiri en á meðal þeirra, er söng stunda og teikningu — og mætti þá eins gefa hinum óorðhögu und- anþágu frá hagmælskunni, eins og hinum ósöngnu frá söng og klaufunum frá teikningu. Þó myndu flestir kom- ast upp á lagið að kasta fram stöku eða jafnvel yrkja, ef áhugi þeirra væri heldur glæddur en dregið úr honum. En nú er það alkunna, að bein formleg kennsla dregur oft niður áhuga hjá nemendum á faginu, nema kennarar séu því betri, og yrði að gæta þess hér að reyna ekki að troða mör í milta, heldur láta nemendur sem frjáls- asta um námið. Stefán Júlíusson segir frá því einhvers staðar í Mennta- málum eigi alls fyrir löngu, að hann kom í barnaskóla í New York og sá þar og heyrði kennslukonu vera að láta börnin setja saman lög — og fór furðu vel úr hendi. Og ekki þarf lengi að leita eftir handlagni í amerískum barnaskólum og miðskólum, ef menn sækja handavinnu- sýningar þeirra: teikningu, málverk, leirmótun, útsaum o. fl. Ég veit ekki, hvort Stefán hefur hlustað á versa- gjörð í amerískum skólum, en mér er sagt, að í mörgum amerískum skólum sé börnunum kennt að yrkja frá því í fjórða bekk barnaskólans, — þegar þau eru 8—9 ára. Og ég þekki stúlku, er tekið hafði skáldskap í college og var skipað að skila einu kvæði á viku. Hér er þá hin mikla útlenda fyrirmynd, sem íslenzkir kennarar geta vitnað í, ef þeim skyldi koma til hugar að endurreisa hagmælsku og vísnakapp í íslenzku barnaskól-

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.