Menntamál - 01.03.1947, Qupperneq 21

Menntamál - 01.03.1947, Qupperneq 21
MENNTAMÁL 15 miklu um stefnur í íslenzkum skólamálum, að Guðmundi Finnbogasyni, höfundi reglugerðar um skóla, skyldi ekki detta í hug að innleiða kennslu í hagmælsku og kvæða- kappi í íslenzka skólakerfið, þar sem hann þó var allra manna fróðastur um íslenzkar vísur og fræði og hinn snjallasti hagyrðingur sjálfur. Nokkuð getur hafa valdið um þetta, að skólakerfið á hans dögum var sniðið til þess að búa menn undir nám í Hafnarháskóla og stúdentar urðu að kunna svo og svo mikið í námsgreinunum, sem hverri fyrir sig var ætlaður viss tími. Að sumu leyti gildir þetta enn um íslenzka há- skólann. En þó mættu bæði norrænufræðingar og prestar þakka fyrir, ef þeir hefðu verið tamdir við vísnagerð á yngri árum, og ekki get ég heldur séð, að það kæmi lækn- um og lögfræðingum illa, ef svo væri. Enn mun verða sagt, að nóg sé af hnoði og leirburði með íslenzku þjóðinni, þótt ekki sé verið að gera leik að því að auka þann óhroða, enda sé ekki til mikils að reyna að kenna þeim mönnum skáldskap, sem ekki hafi þegið skáldskapinn að vöggugjöf. Þeir, sem svo hugsa, hafa að vísu mikið til síns máls, — en þó hygg ég, að dómur þeirra sé ekki á réttum rökum byggður. Ég hygg, að því meiri rækt sem almenn- ingur legði við hagmælskuna þeim mun betri skilyrði mundu góð skáld hafa til þess að vaxa úr grasi. Hefðu þeir bræður, Guðmundur og Sigurjón Friðjónssynir, orðið þau skáld, sem þeir urðu, ef þeir hefðu ekki vaxið upp meðal hagmæltra Þingeyinga? Ef íslenzku skólarnir kepptust við að halda þingeyska hagyrðinga-arfinum við lýði, þá ætti ekki að þurfa að ugga. um ávöxtinn síðar meir. Ég hef verið að benda á kvæðakennslu meðal ensku- mælandi þjóða, af því að íslendingar leggja fremur eyrun við, ef eitthvað kemur úr þeirri átt, þótt það sé kannske ekki alltaf betra en þeirra eigið.

x

Menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.