Menntamál - 01.03.1947, Page 24
18
MENNTAMÁ.L
Vestmannaeyja, segir frá skólastofnun þessari í riti sínu
um Bátaábyrgðarfélag Vestm.eyja, og telur hann, að hér
sé um fyrsta barnaskóla landsins að ræða. Gunnar M.
Magnúss rithöfundur er á sama máli í bók sinni Alþýðu-
fræðslan á íslandi. Og í Sögu íslendinga, 6. bindi, eftir
dr. Pál Eggert Ólason segir svo á bls. 191—192: „Fyrsta
vísis þeirra (þ. e. barnaskóla) getur í Vestmannaeyjum
árið 1745, og var hann endurbættur 1750. Stóðu að þessu
Vestmannaeyjaprestar, en skóli þar féll niður eftir nokk-
ur ár.“
Þessi þrjú dæmi læt ég nægja, og tel ég þau fullnægj-
andi sönnun þess, að hér hafi verið um fyrsta barnaskóla
landsins að ræða.
Fátt eitt er vitað um skóla þennan. Hann var stofnaður
1745 um haustið fyrir forgöngu prestanna í Vestmanna-
eyjum, Guðmundar Högnasonar og Gríms Bessasonar. Var
hann endurbættur eitthvað 1750, en lagðist niður fyrir
eða um 1760 vegna fjárskorts, að því er ætla má.
Til er bréf dagsett 13. ágúst 1759 frá séra Guðmundi
Högnasyni og séra Benedikt Jónssyni um leitun samskota
erlendis til barnaskólans í Vestmannaeyjum. Fylgir bréfinu
kostnaðaráætlun og bréf frá amtmanni. Mun þetta hafa
verið örþrifaráð af hálfu þessara áhugasömu manna til
þess, ef verða mætti, að bjarga málinu.
Samskotaleitun þessi fyrir skólann er talin einsdæmi,
en ekki þarf að undrast það, þótt hún bæri engan árang-
ur, þegar þess er gætt, hversu þekkingu Dana á Islandi
og íslendingum er þá háttað.
Forstöðumaður skólans var Filippus Eyjólfsson, síðar
hreppstjóri í Eyjum. Þessi fyrsti skólameistari í Vest-
mannaeyjum andaðist þar 1791, 73 ára gamall.
Þessi fyrsti barnaskóli landsins varð ekki langlífur, hef-
ur sennilega starfað 15 ár, en lognast svo út af vegna
sinnuleysis stjórnarvaldanna. Hugmyndin um skólahald
fellur þó eigi í valinn með skólanum, en er haldið vakandi,