Menntamál - 01.03.1947, Side 27

Menntamál - 01.03.1947, Side 27
MENNTAMÁL 21 þegar baráttu sína fyrir stofnun skóla og aukinni alþýðu- menntun yfirleitt. Gerði Bjarni margar tilraunir til að koma upp skóla — og kenndi sjálfur unglingum skrift, reikning og dönsku endurgjaldslaust á vetrum. 1866 skrif- ar hann dómsmálaráðuneytinu um barnafræðsluna í Vest- mannaeyjum og leggur fram nákvæma áætlun um skóla- hald. Leggur hann til, að hús það, er dr. Schleisner lét reisa fyrir fæðingarstofnun 1847, er hann fékkst við rannsóknir sínar á ginklofanum, verði tekið til afnota fyrir barnaskóla. Getur hann þess, að samkvæmt skýrslu sóknarprestsins séu 210 börn innan 14 ára aldurs í Vest- mannaeyjum og fari flest þeirra á mis við kennslu í lestri, skrift og öðrum námsgreinum á heimilunum. Telur hann þess brýna þörf, að komið sé upp skóla, þar sem börnin njóti kennslu — ekki einasta í lestri, skrift o. s. frv. — heldur og í reglusemi, hlýðni og hreinlæti. Sýnir þetta glögglega, hvern skilning Bjarni hafði á skóla- og upp- eldismálum. Kostnaðinn við skólahaldið áætlar hann um 280 dali á ári. Vegna hinnar sáru fátæktar almennings lítur hann svo á, að skólagjöld verði að vera mjög lág eða jafnvel engin, að því er sum börnin snerti. Álítur hann þó senni- legt, að Vestmannaeyingar geti lagt fram 150 dali á ári. Ekkert hafði Bjarni annað en vífilengjur af stiftsyfir- völdunum, sem fengið höfðu málið til athugunar. 1867 ritar sýslumaður enn um málið og hefur þá fengið séra Brynjólf Jónsson í lið með sér. Telur hann þá 80 börn á skólaaldri í héraðinu. Virðist yfirvöldunum helzt hafa vaxið í augum, að hafa þyrfti tvo kennara, en sýslu- maður telur það óþarft með öllu, því að skipa mætti börn- unum í tvær deildir, þannig að þau kæmu til kennslu sín deildin hvorn dag. Taldi hann sjálfsagt, að prestur, læknir og sýslumaður kenndu eitthvað við skólann endurgjalds- laust. Heppilegastan kennslutíma taldi sýslumaður frá niiðjum september til miðs maí, eða 8 mánuði.

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.