Menntamál - 01.03.1947, Qupperneq 29

Menntamál - 01.03.1947, Qupperneq 29
MENNTAMÁL 23 1916 fluttist skólinn í stórt og vandað steinhús, sem reist hafði verið í því skyni. Þar voru 6 rúmgóðar kennslu- stofur, auk söngstofu í kjallara og íbúðar skólastjóra á lofti. Leikfimisalur var enginn, og var vitanlega mikill bagi að því. Hin öra fólksfjölgun (íbúatala Eyjanna sexfaldast frá aldamótum til 1930) gerir það brátt að verkum, að allt of þröngt verður enn um skólann. Á árunum 1927—29 var byggð álma austan við skólann til suðurs, og var hún tekin til afnota 1930. Neðsta hæðin öll er leikfimisalur, sem þá var einn hinn fullkomnasti á landinu. Á efri hæðum eru 5 kennslustofur, auk kennarastofu. Síðastliðið skólaár (1945—46) voru í skólanum 460 börn. Fyrir 10 árum voru þau 475, en komust um skeið nokkuð á sjötta hundrað. Fólki hefur nokkuð fækkað í Eyjum á þessum árum, en hlutfallslega hefur þó skóla- skyldum börnum fækkað mun meira. Barnaskóli starfar á vegum safnaðar Sjöunda dags að- ventista. Er hann í þrem deildum, og starfa tveir kenn- arar við hann. Kennarar við barnaskólann eru tólf, auk skólastjóra. Starfar skólinn venjulega í um 20 deildum. Starfstíminn er frá 1. september til 31. maí. Kennarar skólans beittu sér fyrir nokkrum árum fyrir stofnun barnabókasafns í skólanum. Afhenti stéttarfélag kennara skólanum safnið að gjöf við skólaslit 1946. Þótti þetta að vonum myndarleg afmælisgjöf frá kennurunum á þessum merkistímamótum skólans. Er safn þetta þegar orðið allmikið að vöxtum og er starfrækt með góðum árangri.' Skólinn hefur um margra ára skeið haft hjúkrunar- konu og tannlækni í þjónustu sinni, og nú nýlega hefur verið komið upp ljóslækningatækjum í skólanupi. Ötullega er unnið að því að afla skólanum nýrra kennslu-

x

Menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.