Menntamál - 01.03.1947, Page 32
26
MENNTAMÁL
Ný útgáfustjórn
Á fulltrúaþingi S.I.B. 1943 var stjórn Sambandsins falið
að sjá um útgáfu Menntamála um óákveðinn tíma. Stjórn-
in valdi útgáfustjórn þá, er starfað hefur um þriggja ára
skeið, en lætur nú af störfum samkvæmt ósk sinni.
Stjórn S.Í.B. hefur því valið nýja útgáfustjórn, svo sem
þetta hefti ber með sér. Fyrir hönd sambandsstjórnar
býð ég hina nýju útgáfustjórn velkomna að starfi. Einnig
bið ég hana og lesendur ritsins afsökunar á, hve seint
þessi árgangur hefst. Því valda orsakir, sem ekki verða
raktar hér, en snerta á engan hátt hina nýju útgáfustjórn.
En minna vil ég félaga S.I.B. á, að erfitt er að láta rit
koma út á réttum tíma, þegar fjárhagur er þröngur,
prentkostnaður mikill og annríki prentsmiðjanna gífur-
legt á þessari bókaöld.
Einnig vil ég nota þetta tækifæri til þess að þakka
félögum mínum í útgáfustjórn fyrir ágætt samstarf.
Sömuleiðis þakka ég Þórði Pálssyni kennara fyrir ágæta
aðstoð við afgreiðslu Menntamála síðast liðin tvö ár.
Ég get þess að lokum, að ég tel S.Í.B. standa í þakkar-
skuld við þá félaga mína, Arngrím og Ólaf, fyrir störf
þeirra í útgáfustjórninni. A. Kr. hefur sýnt mikinn dugn-
að og ósérplægni í því að afla ritinu tekna. Án hans að-
stoðar hefði ritið verið miklu'minna þessi ár. Ó. Þ. Kr.
hefur sýnt frábæran dugnað og árvekni í starfi sínu. Það
er honum mest að þakka, hve ritið hefur komið reglulega
út þessi ár. Ég hef oft heyrt, að það hefur kennurum
líkað vel. Víst er, að þegar útkomu ritsins hefur seinkað,
er sökin ekki hjá ritstj. Um efni ritsins eru að vonum
skiptar skoðanir. Um slíkt má lengi deila, en ekki hitt,
að Menntamál yrðu miklu betra tímarit, ef vér kennarar
sýndum því meiri sóma eftirleiðis með því að senda fjöl-
breytt efni og afla nýrra kaupenda. Stéttin hefur sýnt