Menntamál - 01.03.1947, Side 45

Menntamál - 01.03.1947, Side 45
MENNTAMÁL 39 anna að hvers konar skrípilátum og óheilbrigðum liísháttum, æsa upp í jteim allt hið frumstæðasta og gera þá með því ónæmari á sannar menntir og hollar lífsvenjur. Væri mikið unnið, ef síikum áhrifum væri hægt að bægja burtu, og enn rneiri fengur væri að j>ví, ef jafn- framt væri hægt að kenna þeint að meta góða og göfuga list, heil- næma skemmtun og nytsama fræðslu. Slæmar kvikmyndir eru mjög í ætt við fuglana forðum, sem átu upp hið góða sæði. Varnir gegn áfengissjúkcLómum. Alfreð Gíslason læknir ritar mjög athyglisverða grein í 1. tölubl. Syrpu um varnir gegn áfengisbölinu. Gerir hann fyrst stutta grein fyrir höfuðatriði jtessa niáls, að drykkjuskapur er alvarlegur sjúk- dómur, og að gegn honum verður ekki unnið að gagni, nema sá skiln- ingur sé lagðttr til grundvallar hvort tveggja 1 því skyni að lækna hina sjúku sent og að koma í veg fyrir, að lieilbrigðir sýkist. Þessi skilningur hefur jtví miður átt litlu fylgi að fagna hér á landi, og því hefur farið, sem farið liefur. Aðalatriðin í tillögum læknisins eru j>au, að komið verði á fót i) hjálparstöð, 2) spítala eða spítaladeild og 3) hæli. Um hjálparstöðina segir m. a.: „Skal hún gegna tvenns konar hlut- verki, vera í senn lækningastöð og heilsuverndarstöð. Sjúklingarnir ntunu leita til liennar um hjálp af sjálfsdáðum eða lil j>ess knúðir af vandamönnum. Þar fá þeir læknisskoðun, heimilisástæður eru at- hugaðar og j>eim gefnar leiðbeiningar um meðferð og nauðsynleg aðstoð veitt venzlafólkinu .... En auk }>ess mundi verkefni stöðvar- innar verða j>að, að leita sjálf uppi livern einasta drykkjumann og sjá honum fyrir læknismeðferð, jafnvel án íhlutunar aðstandenda .... Hið beina lækningastarf stöðvarinnar yrði fólgið í læknisrannsókn á sjúklingnum, mati á andlegu og líkanilegu ástandi hans og ráðlegg- ingum í samræmi við }>að, ásamt eftirliti með árangri." Um spítalann segir: „Oft er brýn nauðsyn að koma drykkjusjúkl- ingum f sjúkrahús. Það er t. d. erfitt að fást við drykkjuæði annars slaðar cn í geðveikraspítala. Hið sama gildir um aðrar enn fágætari tegundir drykkjubrjálsemi. Einföld ölvun getur, sem kunnugt er, orðið svo hatramleg, að til vandræða sé í heimahúsi, og væri }>á ólíkt meiri menningarbragur að J>ví að geta flutt }>á í sjúkrahús en hola j>eim niður í lögreglukjallarann, og vænlegra væri }>að til betrunar." Um hælið segir: „Drykkjumannahælið yrði síðasti liðurinn í þessu kerfi. Þangað færu }>eir einir, sem ókleift reyndist að lækna með öðru móti. Þar yrði vistartíminn langur, reiknaður í misserum eða árum.

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.