Menntamál - 01.04.1957, Page 74
60
MENNTAMÁL
IV.
Aðalverkefni ráðstefnunnar í Delhi var að ganga frá
starfs- og fjárhagsáætlun UNESCO fyrir árin 1957 og
1958, þ. e. starfstímabilið til næstu aðalráðstefnu, sem
ákveðið er að komi saman í París í nóvembermánuði 1958.
Forstjórinn hafði lagt fram frumvarp að starfs- og fjár-
hagsáætlun, þar sem gjöldin voru ráðgerð einni milljón
dollara hærri en árin 1955 og 1956. Þegar frumvarpið
kom til umræðu á ráðstefnunni, þótti fulltrúum sumra
þjóða of lítið fé ætlað til starfseminnar nefnt tímabil.
Fluttu fulltrúar Brazilíu, Spánar, Indlands og Frakklands
tillögu um að hækka gjaldaáætlunina um eina milljón
dollara. Tekjur UNESCO eru framlög frá aðildarríkjum,
svo að þetta táknar um leið hlutfallslega hækkun á fram-
lagi hvers lands, en megintekjur stofnunarinnar koma frá
stórveldunum. Hins vegar njóta öll löndin, stór og smá,
sama atkvæðisréttar, — hafa hvert um sig eitt atkvæði,
hvort sem þau greiða háa eða lága fjárhæð til UNESCO.
í umræðunum um hækkun f járhagsáætlunarinnar vör-
uðu Bretland, Bandaríkin, Canada o. fl. við hækkun, og
töldu hækkunartillöguna borna fram án nægilegs undir-
búnings. Bentu á, að engin rökstudd greinargerð lægi
fyrir um, til hvers ætti að nota viðbótarféð, en undirbún-
ingur að skynsamlegri notkun svo mikils fjár tæki all-
langan tíma. UNESCO hefði þegar mörg járn í eldinum
og væri hyggilegt að fara gætilega. Fulltrúi Ráðstjórnar-
ríkjanna lýsti yfir því, að hann væri óviðbúinn að taka
þátt í atkvæðagreiðslu um tillöguna. Indland og Brazilía
beittu sér fast fyrir hækkuninni og er augljóst, að hin
vanræktu milljónalönd vilja njóta sem mestrar aðstoðar
frá UNESCO, fjárhagslegrar og annars konar, enda eiga
þau ærin verkefni óleyst.
Leikar fóru svo, að tillagan var samþykkt með 27:20
atkvæðum, 19 sátu hjá, en 13 voru fjarverandi.