Menntamál


Menntamál - 01.08.1970, Qupperneq 9

Menntamál - 01.08.1970, Qupperneq 9
í erindi sínu minntist menntamálaráðherrann á um- ræður um hugsanlega gæðarýrnun skólanámsins. Hann sagði, að sextán ára gamlir nemendur í dag hefðu al- mennt meiri kunnáttu en sami aldursflokkur hafði fyrir tuttugu og fimm eða þrjátíu árum. Ef til vill reynast nemendur menntaskólanna nú hafa nokkru minni kunn- áttu að meðaltali en fyrir þrjátíu árum, en það byggist á því, að margfalt fleiri sækja menntaskólana nú en áður, og þar er þvi hærri hundraðshluti meðalgreindra nemenda. Hins vegar fær árgangurinn allur betri mennt- un nú en nokkru sinni fyrr, og af því verður ekki önnur ályktun dregin en sú, að gæðaaukning hafi orðið, þegar á heildina er litið. Þegar metin eru gæði menntunarinnar, má ekki að- eins líta á magn þekkingarinnar, heldur verður einnig að skoða þau svið, sem hún spannar. Þeir, sem ganga í skóla um þessar mundir, læra sumpart annað en fyrir- rennarar þeirra gerðu. Það er ekki aðeins svo, að nýtt námsefni hefur komið til sögunnar og annað glatað gildi sínu; í mörgum skólum hefur áherzlan verið flutt yfir á aðra þætti námsefnisins. Þungamiðjan hefur færzt til í samræmi við endurmatið, sem fram hefur farið á markmiði skólans. Spurningin er ekki aðeins um það, hvort nemandinn hafi öðlast næga þekkingu, heldur hvort hann hafi tileinkað sér rétta tegund þekkingar að námi loknu. Námsskrá hins nýja skóla leggur mikla áherzlu á, að nemendurnir séu þjálfaðir til að vinna saman í hóp og þeim sé innrætt virðing fyrir mismunandi lífsháttum. Ennfremur er lögð áherzla á rétt nemendanna til þátt- töku í ákvörðunum, sem varða líf þeirra, en jafnframt ber að kenna þeim að virða rétt annarra til sams konar áhrifa að sínu leyti. Samvinna einstaklinganna er skilyrði þess að lýðræði fái staðizt. Frá þessu sjónarmiði einu saman er krafan um samvinnu í skóla fyllilega réttlætanleg. i hinu marg- brotna tækniþjóðfélagi, sem við lifum í, er samvinna einnig nauðsynleg forsenda fyrir félagslegum, efnahags- legum og vísindalegum framförum. Á vísindaráðstefnu í Harpsund á liðnu vori sagði próf. Georg Klein t. d., að nauðsyn bæri til að hnekkja þeirri rómantísku hug- mynd, að vísindarannsóknir væru framkvæmdar af ör- fáum einangruðum ofurmennum; samvinna margra ein- staklinga væri forsenda áframhaldandi landvinninga á vísindasviðinu. Gamli skólinn byggði allt á árangri einstaklingsins án þess þó að sinna mismunandi þörfum einstakling- anna. Nýi skólinn sér markmið námsins í öðru Ijósi. í námsskránni beinist athyglin að framtíðarhlutverki nem- andans sem samfélagsþegns og starfsmanns. Á þennan hátt hefur skólinn auðvitað áhrif til breytinga á samfé- laginu. Ef okkur tekst að gera þá hugsjón að veruleika í skólanum, að hver einstaklingur fái tækifæri til persónu- legs þroska í samræmi við hæfileika sína, þá getum við naumast vonast eftir því, að nemendurnir að loknu skólanámi viðurkenni þjóðfélag, sem heftir rétt vissra einstaklinga til þroska og frama. Þeir munu krefjast breytinga á þessu, og sú krafa veldur því, að hraðað verður framkvæmd þeirra hugsjóna, sem allir segjast vera sammála um. Skólinn kemur ekki á betra samfélagi einn síns liðs. Þar þurfa fleiri að koma til skjalanna. En hlutverk skól- ans er mikilvægt við sköpun lýðræðislegs heims. Hin vaxandi alþjóðlega samkennd, sem aukizt hefur mjög síðasta áratuginn, ekki sízt hjá æskunni, er ekki aðeins afleiðing aukinnar fjölmiðlunar, heldur einnig bættrar hæfni til að veita þekkingunni viðtöku. Þær aðferðir, sem beitt hefur verið til að auka lýð- ræðið i skólanum, eru einnig nothæfar til að fjalla um alþjóðleg efni í kennslunni á hugsjónagrundvelli, jafn- framt því sem harður raunveruleikinn er látinn koma fram. Heimurinn skrepþur stöðugt saman og við verðum sífellt háðari hvert öðru. Þess vegna er nauðsynlegt, að við öflum okkur nægilegrar þekkingar um aðra íbúa þessarar jarðar og tökum afstöðu til hinna ýmsu vanda- mála, sem uppi eru á alþjóðavettvangi. Jafnvel fátæku þjóðirnar eru sér meðvitandi um gildi menntunarinnar fyrir framþróunina. Það kemur greini- legast í Ijós í hinni aðdáunarverðu áherzlu, sem lögð er á skólamálin. Vandamálin, sem við er að etja, eru e. t. v. óskiljanlega yfirgripsmikil frá okkar sjónarhóli, og það fyrirfinnast engar töfralausnir á þeim. En í alþjóðastofnunum hafa þjóðir Norðurlandanna tækifæri til þess að fylgja eftir kröfunni um aukna aðstoð á menningarsviðinu, þar sem höfuðáherzlan væri lögð á að finna skipulag til að beita við fræðslu almennings í fátæku löndunum. En þessi tegund alþjóðlegrar skoð- anamyndunar krefst ákveðins almenningsálits í heima- landinu. Byráchef ERKKI AHO, Finnlandi; TENGSLFORSKÓLA OG BARNASKÓLA Hugtakið forskóli hefur mismunandi merkingu í hin- um ýmsu löndum, m.a. eftir því, hvort forskólinn til- heyrir skyldunáminu eða er frjáls, rekinn af einkaaðil- um eða samfélaginu, heyrir undir fræðslumálastjórnina eð félagsmálayfirvöld og síðast en ekki sízt eftir því, hve gildur uppeldisþátturinn er í samanburði við félags- málaþáttinn í starfseminni. Helzti hvatinn í þróun kennslunnar í forskólanum er sá, að þar er kleift að leiðrétta þroskastöðnun, sem or- sakazt hefur af ýmsum miður heppilegum umhverfis- áhrifum. Þetta krefst hraðrar uppbyggingar forskólans, sem ber samkvæmt framansögðu að skoða sem helzta tæk- MENNTAMÁL 123

x

Menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.