Menntamál


Menntamál - 01.08.1970, Qupperneq 16

Menntamál - 01.08.1970, Qupperneq 16
ur Magnússon, lýsti tillögum nefndarinnar, en hún hafði náð samkomulagi um sambandsstjórn og fulltrúa á þing B.S.R.B. Voru tillögur kjörnefndar samþykktar einróma. Þar með var dagskrá þingsins lokið. Var nú langt liðið nætur. Gat forseti þess, um leið og hann þakkaði þingfulltrúum góða fundarsetu, að þetta væri eitt lengsta og erfiðasta þing, sem hann myndi eftir. Að lokum tók formaður sambandsins til máls og þakkaði það traust, sem honum var sýnt með því að endurkjósa hann for- mann sambandsins. Að svo mæltu sleit hann þinginu, og var klukkan þá um hálf fjögur. Hár fara á eftir helztu samþykktir 21. fulltrúaþings S.l.B. 1970: Samþykktir 21. þings S.I.B. Um nýjar kennslugreinar 21. fulltrúaþing Sambands fsl. barnakennara, haldið í Melaskólan- um dagana 5.—7. júní 1970, fagnar þeirri hugmynd að taka upp kennslu í eðlisfræði og erlendum málum é barnafræðslustigi. Jafnframt átelur þingið þau vinnubrögð, ef ætlazt er til, að þessum greinum verði bætt inn á fullskipaða námsskrá, án þess að ætla aukinn tíma til kennsl- unnar. En verði þessum greinum bætt við núverandi stundaskrá, mun vafi á, að endurgreiðsla fáist úr rík- issjóði vegna þessarar kennslu, ef skólinn hefur þegar fullnýtt kennslu- kvóta sinn skv. skólakostnaðarlög- um. Þingið vill vekja sérstaka athygli kennsluyfirvalda á þvi, að ekki verð- ur mögulegt að taka upp nýjar kennslugreinar að neínu marki, nema skólar verði einsettir hér á landi, eins og gerist hjá flestum öðrum menningarþjóðum. Vill þing- ið beina því til menntamálaráðu- neytisins, að nú þegar verði gerð áætlun um, að einsetinn skóli verði orðinn að veruleika á íslandi eigi síðar en 1980. Um mismun í menntun eftir kynjum 21. fulltrúaþing Sambands (sl. barnakennara, haldið dagana 5.—7. júní 1970, beinir þeim tilmælum til nefndar þeirrar, sem vinnur að end- urskoðun fræðslulöggjafarinnar, að hún beiti sár fyrir því, að í lögin verði sett skýr ákvæði, sem komið geti f veg fyrir það, að unnt sé að ákveða með reglugerð (námsskrá), að nemendur á skyldunámsstigi fái mismunandi kennslu eftir kynjum í verklegum námsgreinum, eins og nú á sér stað. Jafnframt beinir þingið þeim ein- dregnu tilmælum til nefndar þeirr- ar, sem vinnur að endurskoðun laga um Kennaraskóla íslands og á að gera tillögur um nýskipan kennara- námsins, að hún hlutist til um það, að gerð verði sú breyting á mennt- un handavinnukennara, að kennsl- an, sem þeir síðar munu veita I verklegum námsgreinum á skyldu- námsstiginu, geti jafnt orðið fyrir drengi og stúlkur. Um aðstöðu fólks til menntunar 21. fulltrúaþing S.Í.B., haldið 5.— 7. júnf 1970, bendir á þann gífur- lega mun, sem er á aðstöðu ungs fólks til langskólanáms, eftir því hvar það er búsett í landinu. Langt- um færra ungt fólk utan þéttbýlis- svæðanna getur sakir kostnaðar stundað slíkt nám. Þingið krefst þess, að nú þegar verði gerðar ráð- stafanir til að skapa ungu fólki úr dreifbýlinu jafngóð skilyrði til fram- haldsnáms og ungu fólki af þáttbýl- issvæðunum. Þingið bendir sérstaklega á, að er kennaranámið verður gert sérnám á háskólastigi eykst enn langskóla- nám f landinu og um leið fækkar kostum ungs fólks úr dreifbýlinu til náms, er veitir stöðuréttindi. Slík ráðstöfun gerir því þörfina fyrir námsaðstoð við fólk úr dreifbýli enn brýnni en ella. Um aukna kennaramenntun Vísindamönnum kemur saman um, að samfélagið sé höfuðorsök íyrir síversnandi geðheilsu fólks. Nægir hér að nefna dr. med. Viktor E. Frankl. í Vín og dr. med. William Glasser í Kaliforníu, sem báðir eru brautryðjendur í geðlækningum. Þar sem orsaka þessa er að leita í sam- félaginu, og uppeldi þess, verður að einbeita kröftunum til hjálpar í þá átt. Hér verður að bregðast fljótt við, því að tíminn er naumur og vanda- málið vex hröðum skrefum. Skólinn er sú stofnun, sem fyrst og fremst verður að hlýða þessu neyðarkalli á hjálp samfélaginu til handa. Hann er hins vegar ekki fær um það, vegna þess að kennaramenntunin er ekki við hæfi. Af þessum ástæðum einum er knýjandi nauðsyn, að kenn- aramenntunin verði stóraukin nú þegar, og starfandi kennarar verði einnig endurhæfðir á kostnað ríkis- ins til þess að mæta þessum vanda áður en hann er orðinn óviðráðan- legur, sem hlýtur að verða mjög bráðlega, ef ekkert er að gert. Störf skólanna verða því aðeins leyst á viðunandi hátt, að þar sé starfað á vísindalegum grundvelli. 21. fulltrúa- þing S.Í.B. skorar því á fræðsluyfir- völd að bregðast fljótt við þessum vanda og draga það ekki lengur en til hauslsins að hefjast handa. Um skólabókasöfn 21. fulltrúaþing S.Í.B., haldið í Reykjavík dagana 5.—7. júní 1970, skorar á menntamálaráðuneytið að beita sér nú þegar fyrir setningu MENNTAMÁL 130

x

Menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.