Menntamál


Menntamál - 01.08.1970, Blaðsíða 18

Menntamál - 01.08.1970, Blaðsíða 18
og áherzla verði lögð á eftiríar- andi atriði við gerð næstu kjara- samninga: 1) Þess verði vandlega gætt, að hlutur barnakennara verði ekki fyrir borð borinn, verði starfs- matskerfi beitt við næstu samn- inga um röðun starfsmanna ríkisins í launaflokka. 2) Sömu laun verði greidd kenn- urum, sem kenna á skyldunáms- stigi, hafi þeir hliðstæða und- irbúningsmenntun. 3) Kennsluskylda barnakennara verði lækkuð í 30 kennslu- stundir á viku. 4) Settar verði ákveðnar reglur um hækkuð laun og aukin rétt- indi til handa þeim kennurum, sem sótt hafa námskeið. 5) Staðaruþpbætur verði greiddar kennurum strjálbýlisins. 6) Kennsluskylda kennara, sem hefur aðalumsjón með bekk, verði stytt um 2 stundir á viku fyrir hvern bekk í umsjón. 7) Daglegur starfstími skóla verði kl. 9.00—12.00 og 13.00—17.00 alla daga nema laugardaga, þá kl. 9.00—12.00. Hefji skóli starf fyrir kl. 9.00, skal starfstíma hans Ijúka þeim mun fyrr. 8) Kennurum verði ekki gert skylt að inna skyldukennslu af hendi í matartíma, nema greitt verði fullt yfirvinnukaup. 9) Yfirvinna kennara verði greidd með 90% álagi á dagvinnu- kaup. Dagvinnukaup kennara fyrir hverja kennslustund skal fundið með því að deila árleg- um kennslustundafjölda (nú 1296) í árskaupið. 10) Föst yfirvinna og aðrar fastar aukagreiðslur í veikindaforföll- um verði greidd í jafnlangan tíma og eftir sömu reglum og fast kaup er greitt í veikinda- forföllum. 11) Greitt verði fullt yfirvinnukaup fyrir þær kennslustundir, sem kennari innir af hendi utan dag- legs starfstíma skólans. 12) Tryggður verði samningsréttur MENNTAMÁL 132 um réttindi og laun stundakenn- ara. 13) Samningur um umsjónar- og eft- irlitsstörf í heimavistarbarna- skólum verði endurskoðaður og tryggt verði, að kennarar fái greitt fyrir alla þá vinnu, sem af hendi er leyst við þessi störf. 14) Endurskoðaðar verði reglur um kennsluskyldu skólastjóra, og séu þær byggðar á raunhæfu mati á starfi þeirra. 15) Við röðun skólastjóra í launa- flokka verði miðað við þann fjölda kennara, sem skólinn á rétt til samkv. lögum um skóla- kostnað. 16) Skólastjórum verði greitt fyrir forfallakennslu, án frádráttar á öðrum greiðslum til þeirra, sé þess ekki kostur að fá kennara til þeirra starfa. 17) Námsstjórar taki laun samkv. sama launaflokki og skólastjór- ar fjölmennustu barnaskólanna. 18) Tekið verði upp nýtt starfsheiti: eftirlitskennari, sem hafa skal eftirlit og námsstjórn í ákveð- inni námsgrein. Kennsluskylda eftirlitskennara verði 4/5 af kennsluskyldu almenns kennara. 19) Kennarar fái greitt fyrir félags- störf, eins og nú tíðkast við gagnfræðaskóla og aðra fram- haldsskóla. 20) Kennarar og skólastjórar fái greidd laun og útlagðan kostn- að vegna þátttöku í námskeið- um yfir sumartímann. 21) Skólastjórar f barna- og ungl- ingaskólum (sameiginl.) hækki um einn launaflokk, og lág- marks kennsluafsláttur þeirra vegna skólastjórnar verði 12 stundir á viku, sem dragist frá 30 stundum. Þá þeinir þingið því til sambands- stjórnar að vinna ötullega að því, að kjaraatriði þau, sem Kjaradóm- ur hefur þegar dæmt, komi strax til framkvæmda. Einnig verði unn- ið að því að leysa þau vafaatriði um launa- og kjaramál, sem enn er ágreiningur um. Um samningsréttarsjóð og lán úr honum 21. fulltrúaþing Sambands ísl. barnakennara, haldið í Melaskólan- um dagana 5.—7. júní 1970, sam- þykkir, að hver félagsmaður greiði árlega kr. 100,00 í samningsréttar- sjóð samtakanna. Þingið heimilar stjórn S.Í.B. að veita kennurum, sem eru í orlofi og stunda nám heima eða erlendis, lán úr sjóðnum. Lán má þó eigi veita fyrr en höfuðstóll er orðinn kr. 300.000,00. Stjórn sambandsins setur nánari reglur um fjölda lána, fjárhæð þeirra, lánstíma og vaxtakjör. Um framkvæmd skólakostnaðar 21. fulltrúaþing S.Í.B. 1970 vítir harðlega framkvæmd skólakostnað- arlaga, þar sem ennþá hefur ekki verið samin reglugerð við lögin og viðkomandi embættismaður túlkar þau eftir eigin geðþótta, og þá að jafnaði á þann hátt að þrengja kosti skólahéraðanna, svo að segja má, að í sumum tilvikum sé um hreina valdníðslu að ræða, sem ekki hef- ur stoð í bókstaf laganna. Torveld- ar þetta mjög starf skólanna og bitn- ar óhjákvæmilega á nemendum. Helztu breytingar á lögum S.Í.B., sem þingið samþykkti: 1. Aðild að sambandinu. Um aðildarrétt segir svo í 3. gr.: „Þeir hafa rétt til að vera í S.Í.B., sem hafa með prófi öðlazt rétt til barnakennarastöðu og starfa að kennslu á skyldunámsstigi, enda séu þeir ekki félagar í öðr- um stéttarsamtökum kennara, svo og þeir, sem gegna námsstjórn eða öðru leiðbeiningarstarfi á skyldunámsstigi, hafi þeir sömu réttindi...“ Eins og hér er greint frá geta kennarar, sem lokið hafa kenn- araprófi og starfa við kennslu á skyldunámsstigi, gerzt félagar í S.Í.B. Áður var þetta ákvæði ein- göngu miðað við kennslu í barna- skóla.

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.