Menntamál


Menntamál - 01.08.1970, Blaðsíða 26

Menntamál - 01.08.1970, Blaðsíða 26
klíð, sem komið hafði fram meðal kennara um þetta mál. Þar sem rökin fyrir afstöðu stjórnar L.S.F.K. í þessu fulltrúakjöri koma nægilega skýrt fram i bréfi, sem L.S.F.K. sendi stjórn B.S.R.B. og í svarbréfi B.S.R.B. kemur fram álit þeirrar stjórnar á málavöxtum, verður hér látið nægja að birta þau bréf. Allmiklar umræður urðu um þetta mál, og gagn- rýndi Ólafur H. Einarsson aðferð landssambandsstjórn- arinnar við fulltrúakjörið harðlega. Taldi hann, að skilja hefði átt álitsgerð dr. Þórðar Eyjólfssonar þannig, að halda hefði átt aðalþing og kjósa fulllrúana þar. Las hann upp bréf til stjórnar B.S.R.B., undirritað af hon- um og Halldóri Blöndal, þar sem endurnýjun á kjörbréf- um fulltrúa L.S.F.K. er mótmælt og beðið er um álit og úrskurð B.S.R.B. á málavöxtum öllum. Einnig bar hann fyrir sig ályktun frá Félagi gagnfræðaskólakenn- ara í Reykjavík, og prentuð var í þingskjölum, þar sem farið er fram á, að aðalþing verði haldið. (Önnur ályktun frá stjórn og trúnaðarráði í Félagi framhalds- skólakennara I Reykjaneskjördæmi, sem fól í sér gagn- stætt álit, var einnig meðal þingskjala.) Eftir snarpar orðræður um málið flutti Þorsteinn Jóns- son tillögu þess efnis, að þingið styddi ákvörðun landssambandsstjórnarinnar um fulltrúakjörið, og var sú tillaga samþykkt með miklum meirihluta atkvæða. Laugardagsmorguninn 13. júní unnu nefndir að álits- gerðum og að aflíðandi degi hófst þinghald að nýju með því að form. L.S.F.K., Ólafur S. Ólafsson, skýrði fyrir fulltrúum ábyrgðartryggingu þá, sem landssam- bandið hefur komið á fyrir alla félaga sína og hefst nú á þessu skólaári. Upp frá því tóku framsögumenn nefnda að flytja álitsgerðir og skýringar við þær. Spunn- ust miklar umræður um þær og var ýmsum atriðum bætt inn I eftir ábendingu fulltrúanna. Stóð þinghald fram til miðaftans, að undanskildu sameiginlegu kaffi- hléi, þar sem landssambandsstjórnin stóð fyrir veiting- um. Sleit formaður þá þingi með stuttri ræðu og óskaði fulltrúum góðrar heimferðar. Ályktun starfsmatsnefndar Nefndarmenn: Bryndís Steinþórsdóttir, Sigursveinn Jóhannesson, Guðmundur Jónsson, Hjörtur Gunnars- son, Halldóra Eggertsdóttir, Albert Jóhannsson, Olgeir Axelsson. Framsögum.: Halldóra Eggertsdóttir. Aukaþing L.S.F.K., haldið í Norræna húsinu 12.—13. júní, ályktar, að starfsmatið eins og það liggur fyrir nú, sé ekki nægilega unnið til að hægt sér að taka endanlega afstöðu til þess. Þingið telur rétt að halda áfram að gerð starfsmats, en tryggja verður að aukið samband verði haft við fulltrúa hinna ýmsu starfsgreina innan L.S.F.K. til þess að koma í veg fyrir, að áberandi ósamræmi skapist milli starfshópa, eins og átt hefur sér stað f þeim drögum, er nú liggja fyrir. MENNTAMÁL 140 Samþykkt samhljóða. Viðbótartillaga frá Guðmundi Sigurðssyni: Þingið lítur svo á, að með starfsmatinu eigi einvörð- ungu að meta starfið, sem um ræðir. Samþykkt með 21 atkvæði gegn 2. Ályktun orlofsnefndar. Nefndarmenn: Óli Vestmann Einarsson, Kristinn Ein- arsson, Matthías Haraldsson, Þórarinn Ólafsson, Gest- ur Ólafsson. Framsögum.: Matthías Haraldsson. Breytingarfillaga við drög að reglugerð um orlofs- heimili B.S.R.B.: 7. gr. /Eski félag þess að afsala sér húsi eða segi sig úr B.S.R.B., þá falli niður afsal stjórn- arinnar skv. 2. gr. Þá skal bandalagið endurgreiða framlag félagsins inn- an t. d. 2ja ára að frádregnum 1/25 hluta þess fyrir hvert ár, sem félagið hefur haft hús til umráða. Samþykkt samhljóða. Aukaþing L.S.F.K., haldið f Reykjavík 12.—13. júní 1970, lýsir sig samþykkt gerðum sambandsstjórnar í orlofsheimilamálum og telur, að rétt sé stefnt. Þingið álítur, að miklu varði, að fast sé haldið á þessum málum, og samþykkir að kjósa 3ja manna nefnd stjórninni til aðstoðar og ráðuneytis um orlofsheimila- málið. Samþykkt samhljóða. Ráðgjafarnefnd var kosin: Sigríður Ólafsdóttir, Guð- mundur Sigurðsson, Helgi Geirsson. Frá allsherjarnefnd. Nefndarmenn: Árni Guðmundsson, Kristmann Eiðs- son, Jón Þórir Jónsson, Jóhannes Pétursson. Fram- sögum.: Jóhannes Pétursson. „Aukaþing L.S.F.K., haldið í Norræna húsinu 12.— 13. júní 1970, skorar á stjórn L.S.F.K. að ganga fast eftir því, að þeir framhaldsskólakennarar, sem nú eru settir um óákveðinn tíma, hljóti skipun í starf þegar í stað.“ Samþykkt samhljóða. Tillaga frá Guðmundi Árnasyni og Birni Bjarman: „Aukaþing L.S.F.K. 1970 lýsir fyllsta stuðningi við baráttu verkalýðsfélaganna fyrir bættum launakjörum. Jafnframt samþykkir þingið að fela stjórninni að gera samþykkt um fjárhagslegan stuðning við verkfallsmenn." Samþ. samhljóða. Frá vinnutímanefnd. Nefndarmenn: Þorsteinn Jónsson, Ólafur H. Krist- jánsson, Ólafur H. Einarsson, Þórgunnur Björnsdóttir, Guðmundur Jensson. Framsögum.: Þorsteinn Jónsson. Sértillaga: „Með tilvísun til 4. töluliðs varðandi stytt- ingu kennsluskyldu umsjónarkennara, leggur þingið áherzlu á mikilvægi sérstakra viðtalstíma fyrir um- sjónarkennara og felur stjórn L.S.F.K. að leita eftir stuðningi Félags skólastjóra við þetta ákvæði." Samþ. samhljóða. Heildartillögur vinnutimanefndar um vinnutíma kenn- ara, eins og þær voru samþykktar að loknum umræðum og breytingum fara hér á eftir:

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.