Menntamál


Menntamál - 01.08.1970, Blaðsíða 11

Menntamál - 01.08.1970, Blaðsíða 11
Hörður Bergmann ræðir við danska kennara um - lýðræði í skólanum - skólabókasöfn - nýjar námsbrautir - aðrar nýjungar Gagnkvæmar, skipulagðar heimsóknir danskra og íslenzkra kennara lióí ust árið 1951 fyrir frum- kvæði Bodil Begtrup þáv. sendiherra Dana hér á landi. Stærstu kennarasamtökin hér og í Dan- mörku og Norrænu félögin hafa mestan veg og vanda af skipulagningu þessara heimsókna og njóta opinberra styrkja og fyrirgreiðslu til að standa straum af dvalarkostnaði gestanna. Nú er sú skipan á þessum heimsóknum, að danskir kennarar sækja okkur lieim fjórða hvert ár, en íslenzkir gista Danmörku á tveggja ára fresti. Tultugu íslenzkir kennarar fóru utan í boði Dana í sumar og jafnmargir danskir sóttu okkur heirn. Gestirnir dvöldust hér frá 19. júlí til 1. ágúst. Þeir ferðuðust víða þá svölu sólardaga og virtust hrífast af íslenzkri náttúru og gestrisni. Meðan á dvölinni stóð átti Hörður Bergmann viðtal við nokkra úr hópnum fyrir Menntamál. Var einkum spurt um þau málefni sem ætla má að íslenzkir kennarar hafi áhuga á að fá fréttir af, og athyglinni einkum beint að nokkrum þátt- um í skólastarfi sem eru á byrjunarstigi eða í gerjun liér. Þeir sem sátu fyrir svörum voru: Per Agner, yfirkennari í Kaupmannahöfn, ritstjóri vikublaðsins K0benhavns Kommuneskole; Knud Wemer Larsen, kennaraskólakennari í Kaup- mannahöfn; Sigurd Pedersen, yfirkennari í Svendborg, ritari Danmarks Realskoleforening; Hans Werner Rasmussen, stærðfræðikennari, gjaldkeri kennarafélagsins í Lyngby og Kamma Warming, yfirkennari í Frederica, ritari í Dansk Historielæreres Forening. Ekki verða tilgreind svör hvers um sig, heldur dregnar saman þær upplýsingar sem gefnar voru af hópnum sam- eiginlega. Síðast liðinn vetur mdtti lesa i dönskum blöð- um um áhyggjur kennara vegna vaxandi áhrifa uppreisnargjarnrar skólaœsku. Eru x>öld nemenda innan skólans orðin of mikil að ykkar dómi? Nei, síður en svo. í dagblöðum helur verið brugðið upp ýktri mynd frá þessu sviði. Það er áreiðanlega leit að þeim kennurum sem vilja stöðva þróunina til aukins lýðræðis í skólunum. Umræður um efnið hafa staðið síðustu 5—6 ár- MENNTAMÁL 125

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.