Menntamál - 01.08.1970, Side 14
er rétt að taka fram að í menntaskólunum
standa yfir gagngerar breytingar, að nokkru
vegna áhrifa frá H F náminu. Prófinu er sér-
staklega ætlað að meta námshæfni, þ. e. a. s.
ekki eingöngu það þekkingarstig sem krafizt er
til framhaldsnáms, heldur og þroska, námstækni
og vinnubrögð. Boðið er nokkurt valfrelsi, auk
sameiginlegs kjarna eru nokkrar valgreinar sem
ljúka verður að ákveðnu marki (pointsystem),
en nemandi velur þær greinar í samræmi við
hæfileika sxna, áhuga og væntanlegt starf eða
framhaldsmenntun. Vaxandi áhuga gætir á því
að H F prófið veiti, að uppfylltum sérstökum
skilyrðum, inngönguiétt í háskóla.
Fleiri nýjungar í skólastarfinu, sem Juegt er
að geta um i stuttu máli?
Enda þótt athygli manna í Danmörku hafi
mjög beinzt að nýskipan kennaranámsins og þró-
un H F prófsins síðustu árin, má ekki gleyma
því að margt hefur verið í geijun og tekið gagn-
gerum breytingum á neðri skólastigum. Eitt ein-
kenni breytinganna er það að dregið hefur úr
mótandi áhrifum efri skólastiga á þau neðri. Við
höfum fengið forskóla (b0rnehaveklasser) fyrir 6
ára börn. Þar er kennt 3 tíma á dag, tveir hóp-
ar nota húsnæðið dag hvern. Kennslan er í
höndum sérmenntaðra kennara sem hlotið hafa
menntun í b0rnehaveseminarier. Þessir forskólar
eru sérstakar stofnanir, ýmist reknar af bæjai-
félagi eða einkaaðilum. Næsta skólastig hefur
Frétt frá L.S.F.K.
Að gefnu tilefni vill skrifstofa L.S.F.K. vekja athygli
kennara á að ábyrgðartrygging kennara, sem sagt var
frá í síðasta liefti, er þegar gengin í gildi. Iðgjaldið er
kr. 50,00 á einstakling, en á það leggst söluskattur og
stimpilgjald fyrsta árið. Ofangreint iðgjakl er inni-
falið í árgjöldum kennara og er því greitt úr sjóði
L.S.F.K.
engin bein áhrif á hvað þarna er kennt, heldur
er starfið lagað að þörfum barna á þessu aldurs-
stigi.
Námsskrá fyrir folkeskolen (Den blá Betænk-
ning), sem lokið var 1960, heíur haft mikil áhrif.
Við höfum íengið mikið af nýjum, góðum
kennslubókum sem eiga að auðvelda kennurum
að ná þeim námsmarkmiðum sem þar eru sett.
í seinni tíð hefur þó sumt í þeirri námsskrá sætt
nokkurri gagnrýni.
Þá hefur mikið starf verið unnið við að breyta
kennslu lesgreinanna. í stað gömlu skiptingar-
innar í landafræði sögu og náttúrufræði er nú
írá og með 3. bekk leitazt við að sameina þessar
greinar og fjalla í kennslunni um atburði og
vandamál líðandi stundar (orientering). Þá við-
leitni má raunar einnig greina í kennslubókum
fyrir móðurmálskennsluna og í lesbókum í er-
lendum málum. Þessi þróun hefur m. a. gert
skólabókasöfn ómissandi í skólastarfinu.
Þá er það sem við köllum tilvalgsskole á til-
raunastigi. I einstaka bæjarfélögum, svo sem
Gladsaxe, er þessi skólaskipun alveg komin til
framkvæmda. Höfuðsjónarmiðið er að gefa nem-
endum kost á ákveðnu valfrelsi í námi frá og
með 8. bekk. Reynzt hefur erfitt að semja stunda-
skrár fyiir vallrjálst nám, og menntun kennara
þykir ábótavant í ýmsum greinum þegar unnið
er eftir þessari nýju skipan, en mikill áhugi er
á frekari framvindu þessa fyrirkomulags.
Skrifstofa L.S.F.K. verður opin yfir
kennslumánuðina:
mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga
kl. 15.00—17.00,
miðvikudaga kl. 17.00—19.00.
MENNTAMÁL
128