Menntamál - 01.08.1970, Side 20
Skúli Þorsteinsson:
Ávarp
við setningu
21. fulltrúaþings S.I.B.
Herra menntamálaráðherra, virðulegu gestir,
góðir þingfulltrúar. Ég býð yður velkomna til
21. fulltrúaþings Sambands íslenzkra barnakenn-
ara. Sérstaklega býð ég menntamálaráðherra, dr.
Gylfa Þ. Gíslason, velkominn, en hann ávarpar
þingið nú við setningu þess.
Ég þakka borgarstjóra Reykjavíkur, Geir f-Iall-
grímssyni, fyrir þá rausn og vinsemd, sem hann
sýnir jafnan þingum samtakanna. Þau hafa allt-
af verið haldin í skólahúsnæði borgarinnar án
endurgjalds og þingfulltrúar hafa þegið góðan
beina hjá borgarstjórn.
Þingfulltrúar fá starfsskýrslu stjórnarinnar síð-
astliðið kjörtímabil með þingskjölum. Þar er
getið þeirra mála, sem sambandsstjórn hefur
haft til meðferðar. Eins og starfsskýrslan ber með
sér, fer starfsemi sambandsins vaxandi ár frá ári
og verður varla lengur hjá því komizt, að sam-
bandið liafi starfsmann í fullu starfi.
Félagar í Sambandi íslenzkra barnakennara
eru nú 861, allir nteð réttindi til starfs í barna-
skólum. Aðrir geta ekki orðið félagar. Fulltrúar,
sem rétt eiga til setu á þessu þingi, eru 95.
Aðal dagskrármálin eru tvímælalaust kennara-
menntunin og launamálin.
Sá ánægjulegi atburður skeði á þessu ári, að
Skólarannsóknir og öll kennarasamtök landsins
hafa sameinazt um útgáfu Menntamála. Skapast
nú möguleiki til þess, að ritið geti gegnt hlut-
verki sínu með meiri reisn en áður. Málgagn,
sem kennarar á öllum skólastigum standa að,
ætti í framtíð að geta orðið áhrifaríkt í þágu
fræðslu og uppeldis.
Einnig ber að fagna því, að framhaldsdeild
Kennaraskóla íslands tók til starfa í vetur í
breyttu formi, þar sem starfandi kennurum gefst
kostur á fullkomnu ársnámi í kennslu afbrigði-
legra nemenda með því að dreifa náminu á
tvö ár.
Á síðasta kjörtímabili hefur mikið verið rætt
og ritað um fræðslumál. Einkum hefur mennt-
un kennara verið á dagskrá. Mjög hefur verið
deilt á ríkjandi ástand í fræðslumálum, oft með
rökum og að réttu, en stundum hefur gætt van-
þekkingar og stóryrða, sem ekki leysa neinn
vanda. Það er ekki sannleikanum samkvæmt, að
MENNTAMAL
134