Menntamál - 01.02.1976, Blaðsíða 6

Menntamál - 01.02.1976, Blaðsíða 6
„HLUTVERK MENIMTAMÁLA" Tímarit kennara, Menntamál, er á tímamótum. í deiglu er hvernig staðið verður að útgáfu ritsins í náinni framtíð. Á ýmsu hefur gengið undanfarin ár og misjöfn upp- skeran og margir velta fyrir sér hvert sé hlutverk tímarits eins og Menntamála. Þegar Menntamál höfðu verið gefin út í 20 ár (árið 1947) skrifaði Sigurður Thorlacius skóla- stjóri stutta grein í ritið í tilefni þeirra tímamóta. Ég tel að varla verði betur fjallað um hlutverk Menntamála í stuttu máli og birti því umrædda grein hér þótt nú fari að styttast í að 30 ár séu liðin frá því að hún var rituð. „Yér lifum á tímum flaums og byltinga. Sorgirnar þungar sem blý hvíla á herðum þjáðu mannkyni sem sér hilla í upprof gegnum sprengjuregn og harðstjórnarmyrkur og fram undan bjarmar fyrir nýjum tíma. Uppeldis- og kennslumál verða veglegur og áhrifamikill þáttur í uppbyggingu hinnar nýju frelsisaldar. íslenskum kennurum og öðrum menntafrömuðum ber skylda til að vera á verði, fylgjast með og tileinka sér erlendar nýjungar og rannsóknir sem menningarmálum vorum mega að gagni verða. Og íslendingum ber einnig að leggja sinn skerf til rannsókna og þekkingar — bóta. Þjóðmenning vor hefur verið sérstæð um margt frá öndverðu. Hin ytri uppeldis- og menningarskilyrði eru enn sérkennileg á ýmsa lund og þekking vor á uppruna þjóðar og ætterni einstaklinga heilsteyptari en dæmi munu til annars staðar. Allt þetta ætti að veita íslenskum fræðimönnum sem fengjust við mannfræði, félagsfræði — og uppeldisfræðilegar rannsóknir aðstöðu til athugana sem gætu haft alþjóðlegt gildi. Hlutverk Menntamála, tímarits kennara, í sambandi við þá nýsköpun í íslenskum fræðslu- og menningarmálum sem koma þarf og koma mun í náinni framtíð er næsta mikilsvert og augljóst. Heillaóskir rpínar ritinu til handa á þessum tímamótum fela í sér þá einlægu von og það traust að því auðnist að ganga í fararbroddi og bera hátt merki framsækinnar kennarastéttar.“ Á næsta ári verða 50 ár liðin frá fyrstu útgáfu Menntamála. Enn hafa Menntamál hlutverki að gegna. Ritstjóri. MENNTAMÁL 6

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.