Menntamál - 01.02.1976, Síða 7
Er skólinn skemmtilegur eða leiðinlegur í hugum nemenda ?
Taka nemendur vissar greinar fram yfir aðrar?
Eru viðhorf nemenda til almennu námsgreinanna önnur en til sérgreinanna ?
Breytast viðhorf nemenda til einstakra námsgreina og skólans í heild yfir árin?
Þessum og fleiri spurningum er reynt að svara í greininni sem hér birtist undir
nafninu: Er gaman í skólanum ?
Ritstj.
Stefán Edelstein:
ER GAMAINI I
Stefán Edelstein tók próf frá Tónmenntarkenn-
aradeild Tónlistarháskólans í Freiburg, Þýska-
landi árið 1962. Hann hefur einnig sótt ýmis
námsskeið og verið í námsferðum í Þýskalandi,
Ungverjalandi og Bandaríkjunum.
Hann er skólastjóri Barnamúsíkskóla Reykja-
víkur og kennari við Tónmenntarkennaradeild
Tónlistarskólans í Reykjavík. Einnig hefur hann
unnið hjá Skólarannsóknum menntamálaráðuneyt-
isins að endurskoðun námsefnis í tónmennt og að
skipulagi og framkvæmd tónmenntarkennslu með
nýtt tilraunanámsefni á grunnskólastigi.
Sem stendur er greinarhöfundur formaður starfs-
hóps nokkurra bandarískra og íslenskra tónmennt-
arkennara og námsskrárhöfunda, sem eru að vinna
að gerð rammanámsskrár í greininni tónmennt.
SKOLANUM ?
í þessari grein er fjallað um tvo þætti: Tilraun
með aukna og breytta tónmenntarkennslu (söng-
kennslu) í fyrstu fjórum bekkjum barnaskólans og
almenna bakgrunnsrannsókn á stöðu námsgreina
í sömu bekkjum. Tilraunin og rannsóknin voru
gerðar á árunum 1968-1970 í nokkrum skólum í
Reykjavík og nágrenni en úrvinnsla gagna hófst
haustið 1970 og lauk haustið 1974, að vísu með
alllöngum hléum á milli.
Greinarhöfundi er ekki kunnugt um að sambæri-
legar tilraunir við tónmenntartilraunina (þar sem
viðhorf nemenda til greinarinnar tónmennt miðað
við aðrar greinar hefur verið kannað við ólík
kennsluskilyrði) hafi verið gerðar annars staðar.
Að vísu hefur einn þáttur sem einnig er viðfangsefni
í þessari tilraun verið kannaður í Ungverjalandi,
þ.e. áhrif aukinnar tónmenntarkennslu (söng-
kennslu) á námsárangur nemenda í öðrum greinum
(sbr. kenninguna um yflrfærslu og meðæfingu, bls.
5). Kennarar og sálfræðingar í Ungverjalandi halda
því fram að nemendur sem njóta markvissrar söng-
kennslu daglega nái betri námsárangri í lestri,
stafsetningu og jafnvel reikningi, að líkamsþroski
og öndunarþol þeirra sé meira og að þeir séu
félagslega þroskaðri en nemendur sem njóta ein-
ungis tónmenntarkennslu 1-2 sinnum vikulega.
Hafa tilraunir og kannanir hvað þessum atriðum
viðkemur farið fram í Ungverjalandi og verið birtar
um þær greinar. Mjög hæpið er þó að alhæfa út
frá ungversku niðurstöðunum þar sem nemenda-
MENNTAMÁL
7