Menntamál - 01.02.1976, Page 10

Menntamál - 01.02.1976, Page 10
þar sem bekkjakennarar tilrauna- og samanburðar- bekkjanna voru beðnir að svara ýmsum spurning- um varðandi sérgreinarnar og nokkur önnur valin atriði. Var unnið úr þessum spurningaskrám og eru niðurstöðurnar birtar seinna í þessari grein. 6. Vióhorf tónmenntarkennarans til starfsins. Hvað lið 6. varðar, voru tónmenntarkennararnir sem tóku þátt í tilrauninni spurðir um viðhorf þeirra til kennslustarfsins fyrir og eftir tilraunina og breytingar á viðhorfum þeirra metnar. Frumtilgátan er sú að aukin tónmenntarkennsla í skólum auki námsárangur í öðrum greinum, hafi jákvæð áhrif á afstöðu nemandans til skólans al- mennt, bæti möguleika bekkjarkennarans í starfi hans og auki starfsþol og starfsgleði tónmenntar- kennarans. Tilrauninni með aukna og breytta tónmenntar- kennslu er lýst hér að neðan. Lýsing á tónmenntartilrauninni Vorið 1968 var leitað til þriggja skóla í Reykjavík og eins skóla utan Reykjavíkur og þeim boðin þátttaka í tilrauninni. Skólastjórar þessara skóla sýndu málinu áhuga og tjáðu skóla sína fúsa til þátttöku. Það kom í ljós skömmu síðar að einn Reykja- víkurskólanna gat ekki tekið þátt í tilrauninni sem tilraunaskóli veturinn 1968-69 þar sem enginn tónmenntarkennari (söngkennari) kenndi við skól- ann þann vetur. Var samt ákveðið að hafa þennan skóla með í eitt skólaár og reyna að fá upplýsingar um viðhorf nemenda til tónmenntar og annarra greina þótt engin tónmenntarkennsla færi þar fram, einmitt til samanburðar við aðra skóla þar sem greinin var kennd. 2. Tilrauna- og samanburðarbekkir (TB og SB) Samkvæmt mati skólastjóra var valinn einn fyrsti bekkur (7 ára) og einn annar bekkur (8 ára) í hverjum hinna þriggja skóla sem eftir voru, alls 6 bekkir, sem tilraunabekkir. Þess var gætt að þessir 6 bekkir gæfu sem sannasta mynd af þver- skurði á „bekkjargæðum“ skólanna og tilheyrðu peir bestu, miðlungs- og lökum bekkjum í hverjum sköla. Þegar tilraunabekkirnir höfðu verið valdir úr 1. og 2. bekkjum hvers skóla, var allur árgangurinn, sem eftir var í hverjum skóla, valinn sem saman- burðarhópur og sömu spurningaskrár lagðar fyrir hann og tilraunabekkina. Eftirfarandi tafla gefur yfirlit yfir nemendaíjöld- ann sem tilraunin tók til. Tekur þessi nemenda- fjöldi bæði til tónmenntartilraunarinnar og til al- mennu bakgrunnsrannsóknarinnar. Alls voru, eins og áður var sagt, 4 skólar með í tilrauninni (einn þeirra þó eingöngu sem sérstakur „samanburðar- skóli“ án tónmenntarkennslu). Heildarmyndin vor- ið 1968 (áður en tilraunatímabilið hófst) var þessi: Skólar: 4, bekkir: 33 (6 TB og 27 SB). Nemendur alls: 778. í einstökum atriðum var myndin þessi vorið 1968: Skóli 1 (sérstakur „samanburðarskóli“ án tón- menntar, sem var eingöngu hafður með til vorsins 1968, þ.e. helming tilraunatímabilsins): 7 ára (l. bekkir): 6 8 ára (2. bekkir): 5 Nemendur samtals: 136 Nemendur samtals: 142 Bekkiralls: ll Nemendur alls: 278 Skóli 2: 7 ára (1. bekkir): 3 8 ára (2. bekkir): 3 Nemendur samtals: 70 Nemendur samtals: 63 Bekkiralls: 6 Nemendur alls: 133 Skóli 3: 7 ára (1. bekkir): 4 8 ára (2. bekkir): 4 Nemendur samtals: 80 Nemendur samtals: 92 Bekkiralls: 8 Nemendur alls: 172 Skóli 4: 7 ára (1. bekkir): 4 8 ára (2. bekkir): 4 Nemendur samtals: 96 Nemendur samtals: 99 Bekkiralls: 8 Nemendur alls: 195 Þegar haustið 1968 höfðu sumir skólarnir stækk- að og íjölgað bekkjum vegna stækkunar hverf- anna. Um svipaða fjölgun var að ræða haustið 1969. Breytingar (viðbót nemenda vegna stækk- aðra skóla) voru þessar í einstökum atriðum: Haustió 1968 miðaó vió vorið 1968: Skóli 1:1 3. bekicui Nemendur samtals: 28 Skóli 2:1 3. bekkur Nemendur samtals: 26 Samtals 2 bekkir Nemendur alls: 54 MENNTAMÁL 10

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.