Menntamál - 01.02.1976, Síða 18
(lægstur allra bekkja) þar sem hann var mjög já-
kvæður áður. (Tilgáta: bekkurinn var læs 1968,
hann hefur ekki lengur markmið að keppa að og
lestrarefni skólans veitir honum ekki fullnægingu;
honum fer aó leiðast í lestri). Hins vegar nefur 3L
fengið áhuga á átthagafræði og handmennt (hæstur
í jákvæðu viðhorfi til þessara greina) og þessi áhugi
er á kostnað áhuga á skrift og söng.
3K (lakasti bekkurinn) heldur meðallínunni í
hefðbundnu greinunum, en til átthagafræði hefur
hann tiltölulega neikvætt viðhorf (Tilgáta: vinnu-
brögðin henta honum ekki). Til söngs hefur þessi
bekkur mun jákvæðara viðhorf en hinir bekkirnir
(Tilgáta: hér er ekki krafist þekkingar og kunnáttu
af bekknum; hann fær tilfinningalega útrás í söng
og söngur verður grein þar sem hann þarf ekki að
kvíða því að hann verði „sér til skammar“). Við-
horf til leikfimi er tiltölulega neikvætt, líklega vegna
þess að nemendurnir í þessum bekk (sem jaðrar við
að vera ,,hjálparbekkur“) eru tiltölulega klaufskir.
Sennilega krefst kennarinn of mikils af þeim og
þeir öðlast neikvæða sjálfsmynd; leikfimikröfurnar
verða þeim ofviða.
Viðhorf allra bekkjanna til handmenntar (smíði
og handavinnu) er jákvætt. Hún er vinsælasta grein-
in. Vinsældir hennar virðast hafa orðið aðallega á
kostnað söngs, en einnig á kostnað annarra greina,
m.a. leikfimi. (Tilgáta: það sem er nýtt er alltaf
vinsælast því það er forvitnilegt og nemendur eru
enn ekki orðnir leiðir á því).
Á samanburði mynda 1A og 1B sést að bekk-
irnir hafa sín sérstæðu „viðhorfamynstur“ sem
mynda frávik frá skýrri meðallínu. Breytingarnar
yfir 2 ár eru einnig áberandi „einstaklingsbundnar“
eftir bekkjum og virðast eitthvað vera háðar
„gæðaflokkun“ bekkjanna, þ.e. þeirri sjálfsmynd
sem nemendur hljóta þegar skólareynsla þeirra
eykst.
2. eining: Samantekt heils skóla yfir tímabilið 1968-
70 fyrir 1.-3. bekk og 2.-4. bekk, TB og SB sér
(Ath.: sem dæmi er skóli nr. 3 tekinn aftur. TB‘69
táknar t.d. tilraunabekkur 1969 og SB‘69 táknar
samanburðarbekkir 1969.)
Á mynd 2A sjást TB og SB 1968 (áður en til-
raunin hófst) og sömu bekkir aftur 1969 og 1970
(1.-3. bekkir).
TB (sem var „næstlakasti“ bekkurinn í árgangi)
hefur jákvæðara viðhorf til hefðbundnu greinanna
(reiknings, lesturs og skriftar) á öðru ári (1969) en
MENNTAMÁL
18